Upp­gjör, við­töl og myndir: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna

Árni Jóhannsson skrifar
Taiwo Badmus var frábær í kvöld og átti stóran þátt í sigri Valsmanna.
Taiwo Badmus var frábær í kvöld og átti stóran þátt í sigri Valsmanna. vísir/Diego

Valur og KR mættust í kaflaskiptum leik í 7. umferð Bónus deildar karla í körfuknattleik í N1 höllinni fyrr í dag. KR byrjaði mun betur en frábær þriðji leikhluti dugði Val til að innbyrða 101-94 sigur eftir æsilegar lokamínútur.

KR byrjaði eins og kóngar í þessum leik. Varnarleikurinn hélt því sóknarleikur Vals voru afleitir sóknarlega og það var auðvelt fyrir KR að labba í gegnum vörn Vals til að skora stigin. Staðan var 4-16 þegar um fimm mínútur voru liðnar. KR lék við hvern sinn fingur áður en Valur náði að finna taktinn sinn og laga stöðuna sem var 20-27 eftir fyrsta leikhluta.

Þórir Þorbjarnarson reyndi eins og hann gat en allt kom fyrir ekki.Vísir / Pawel Cieslikiewicz

Þá var Valsvélin ræst. Varnarleikurinn varð betri, orkustigið varð betra hjá Val á meðan hinn góði taktur hjá KR datt niður. Valur hélt KR í 17 stigu og skoruðu sjálfir 23 stig með góðum varnarleik sem varð til þess að sóknarleikurinn batnaði. Forskot KR var því ekki nema eitt stig í hálfleik 43-44.

Valur lét kné fylgja kviði í seinni hálfleik. Byrjuðu á 10 stiga sprett og hleyptu KR bara ekki nær neinu sem þeim líkaði vel í sínum leik. Taiwo Badmus var frábær í fyrri hálfleik, var kominn með 20 stig þá og hélt frábærlega áfram í þriðja leikhluta. Kristinn Pálsson vaknaði þá til lífsins og náði liði sínu í 10 stig forskot um miðjan leikhluta. Badmus var kominn í 32 stig í þriðja leikhluta og Valur komst í 15 stiga mun. Staðan var 74-60 eftir þriðja leikhluta.

Kristinn Pálsson lagið mjög mörg lóð á vogarskálarnar í kvöld.Vísir / Pawel Cieslikiewicz

KR gerði vel í upphafi fjórða leikhlutaog náðu muninum niður í níu stig og stemmningin var með KR mönnum. Þá var dæmd villa frá boltanum og þriggja stiga karfa söng í netinu fyrir Valsmenn. KR voru mjög ósáttir því þeir héldu því fram að Frank Booker væri ekki kominn í skothreyfingu þegar villan var dæmd. Dómurinn stóð, að sjálfsögðu, Valsmenn fengu boltann aftur og settu niður annan þrist og munurinn aftur kominn upp í 15 stig. Valur kom muninum upp í 19 stig 93-74 en KR voru ekki dauðir úr öllum æðum og minnkuðu muninn niður í fimm stig, 99-94 en komust ekki nær og tíminn rann út og Valur fögnuðu innilega.

Króatarnir í liðunum börðust á löngum köflum í leiknum.Vísir / Pawel Cieslikiewicz

Atvik leiksins

Það dró tennurnar úr endurkomu KR að fá dæmda á sig villu, þriggja stiga körfu niður sem var mjög umdeild og aftur þristur niður hjá Val. KR var búið að koma sér í djúpa holu en svona atvik á þessum tímapunkti þar sem neisti er mögulega að verða að báli en var slökkt í honum.

Stjörnur og skúrkar

Það voru tveir leikmenn sem voru gjörsamlega frábærir í kvöld. Taiwo Badmus var stigahæstur í leiknum. Skoraði 37 stig og leiddi Val til sigurs í kvöld. KR-ingar urðu mjög hikandi á löngum köflum þegar Valsmenn náðu að stíga harðar gegn Nimrod Hilliard IV sem þó skoraði 33 stig en aðrir voru með minna.

70 stig á einni mynd.Vísir / Pawel Cieslikiewicz

Það var skúrkalykt síðan af Val í upphafi leiks og KR-ingum í öðrum og þriðja leikhluta sem varð til þess að ekki var nægur tími fyrir KR til að komast til baka. Annars var vel gert að gera þetta að leik.

Umgjörð og stemmning

Stemmningin var frábær! Rúmlega 600 sálir í salnum og létu sig vel í sér heyra allan tímann. Flottur körfuboltaleikur sem átti skilið marga í stúkunni og stemmningu.

Vel mætt í kvöld og mikil læti.Vísir / Pawel Cieslikiewicz

Dómararnir

Voru ekki mikið fyrir lungan úr leiknum. Það var ofangreint atvik sem litaði stemmninguna en ekkert til að kvarta yfir svo sem.

Viðtöl:

Jakob: Seinni hálfleikur var alls ekki nógu góður

Jakob Sigurðsson var þungt hugsi í kvöld.Vísir / Pawel Cieslikiewicz

Hann var mjög leiður þjálfari KR, Jakob Sigurðsson, þegar blaðamaður náði á hann eftir leikinn í kvöld.

„Þetta var augljóslega ekki nógu gott“, þegar Jakob var spurður út í leikinn í kvöld.

„Seinni hálfleikur var alls ekki nógu góður. Sérstaklega hvernig við komum út í seinni hálfleikinn miðað við hvernig við byrjuðum leikinn. Við vorum ekki á tánum, ekki nógu aggressívir og bara ekki vel tengdir sóknarlega. Áttum svo erfitt með að koma okkur aftur inn í leikinn.“

Hann var spurður að því hvað hafi breyst frá byrjun leiksins sem var frábær hjá KR.

„Góð spurning. Við þurfum að skoða það. Ég veit það ekki og það þarf að skoða það hvort eitthvað hafi breyst. Við breyttum ekki neinu í okkar skipulagi þannig að það var bara framkvæmdin sem var ekki nógu góð. Við töpuðum alltof mikið af boltum sem gerði það að verkum að þeir hlupu ítrekað í bakið á okkur.“

Jakob var þá spurður hvort KR-ingar hafi orðið litlir í sér við ákafari vörn heimamanna.

„Ég veit það ekki. Við vorum smá hikandi. Kannski ekki litlir í okkur. Það var meiri stemmning hjá þeim og þeir töluðu meira. Þeir urðu ekkert mikið ákafari varnarlega en við vorum hikandi í ákvörðunum. Sem varð til þess að við töpuðum boltum og tókum slæmar ákvarðanir.“

Dómararnir komu við sögu þegar KR virtist vera á leiðinni til baka og var Jakob beðinn um viðbrögð við því.

„Það er risa play þegar við erum á leiðinni til baka, þeir dæma villu og telja að þeir hafi verið í skoti en ég þarf að sjá það aftur hvort leikmaðurinn þeirra hafi verið í skotinu þegar villan átti sér stað. Það eru þrjú stig og svo annan þrist strax. Það tók þetta frá okkur en við vorum mjög nálægt því að gera þetta að einnar körfu leik en það gekk ekki.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira