Innlent

Bein út­sending: Heims­þing kven­leið­toga

Atli Ísleifsson skrifar
Þingið er nú haldið í sjöunda sinn.
Þingið er nú haldið í sjöunda sinn. Reykjavik Global Forum

Heimsþing kvenleiðtoga Reykjavik Global Forum, fer fram í Hörpu í dag og á morgun. Þingið er skipulagt í samstarfi við fjölmarga erlenda og innlenda aðila, og í ár er sérstök áhersla lögð á að kvenleiðtogar taki höndum saman undir yfirskriftinni „Power Together for Action.”

Hægt er að fylgjast með þinginu í beinu streymi, en áætlað er að rúmlega fjögur hundruð alþjóðlegir kvenleiðtogar komi til Reykjavíkur til þátttöku.

Meðal þátttakenda í ár eru:

  • Halla Tómasdóttir, forseti Íslands.
  • Mary Robinson, fyrrverandi forseti Írlands og mannréttindalögfræðingur.
  • Maria Ressa, friðarverðlaunahafi Nóbels og stofnandi Rappler.

„Þessar konur, ásamt fjölda annarra leiðtoga í jafnréttismálum, munu deila innsýn sinni og reynslu til að efla samstarf og aðgerðir á sviði jafnréttis.

Á þinginu verða kynntar niðurstöður Reykjavik Index for Leadership 2024 í samstarfi við rannsóknarfyrirtækið Verian. Mælingin metur afstöðu almennings í ólíkum löndum til kvenna og karla í leiðtogastöðum, og eru sérstakar niðurstöður fyrir Ísland hluti af rannsókninni,“ segir í tilkynningu.

Hæger að fylgjast með þinginu í beinu streymi að neðan.

Fyrri dagur, 11. nóvember:

Seinni dagur, 12. nóvember:

Um þingið segir að það leggi áherslu á fjóra meginþætti, sem byggi á árangri Íslands í jafnréttismálum:

  • Aðgerðir til aukins launajafnréttis.
  • Fjölgun kvenna í forystu.
  • Jafnan rétt kynjanna til töku fæðingarorlofs.
  • Aðgerðir til að útrýma kynbundnu ofbeldi.

Tilgangur þingsins er að skapa vettvang fyrir opna umræðu og hvetja til raunhæfra aðgerða sem stuðla að jafnrétti kynjanna á heimsvísu. Með því að safna saman leiðtogum úr ólíkum geirum er markmiðið að deila bestu starfsvenjum og finna nýjar leiðir til að takast á við áskoranir.

Haft er eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, stjórnarformann og einn af stofnendum Heimsþings kvenleiðtoga, að þingið sé nú haldið í sjöunda sinn og hafi á þeim tíma fest sig í sessi sem mikilvægan vettvang fyrir samstarf í átt að auknu jafnrétti.

„Á þessu mikla kosningaári, 2024, verður sjónum sérstaklega beint að mikilvægi jafnréttis fyrir lýðræðið. Einnig má ætla að tækni og atvinnulíf í breiðu samhengi, með hliðsjón af jöfnum tækifærum kynja, verði til sérstakrar umræðu. Stór hluti umræðunnar beinist einnig að stöðu jafnréttismála á Íslandi og því sem heimurinn getur lært af okkar reynslu,“ er haft eftir Hönnu Birnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×