Innlent

Flokkar í út­rýmingar­hættu, smánarlaun og tónlistarveisla

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Erla Björg Gunnarsdóttir ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar les fréttir í kvöld.
Erla Björg Gunnarsdóttir ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar les fréttir í kvöld. Vilhelm

Fylgi flokkanna er á töluverðri hreyfingu nú þegar einungis rúmar þrjár vikur eru til kosninga samkvæmt nýrri könnun Maskínu og Viðreisn á miklu flugi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rýnt í spennandi stöðu í pólitíkinni með Ólafi Þ. Harðarsyni, prófessor í stjórnmálafræði.

Lyfjatengd andlát á síðasta ári voru tvöfalt fleiri en fyrir áratug og í um fjórðungi andláta var um vísvitandi sjálfseitrun að ræða. Við ræðum við framkvæmdastjóra hjá SÁÁ sem segir stjórnvöld þurfa að bregðast af alvöru við vandanum.

Við heyrum einnig í Kamölu Harris og Joe Biden sem hafa ávarpað Bandaríkjamenn og heitið friðsamlegum valdaskiptum. Auk þess hittum við fulltrúa verkalýðsfélags starfsmanna í samlokuverksmiðju Bakkavarar í Bretlandi. Hann er staddur hér á landi til að reyna að ræða við Bakkavararbræður og hefur verið með áberandi mótmæli. Fyrirtækið er sakað um að smána starfsmenn með fátæktarlaunum.

Þá verðum við í beinni útsendingu frá Hönnunarverðlaunum og í beinni frá Airwaves-tónlistarhátíðinni sem hefst í kvöld en von er á mikilli stemningu í Reykjavík um helgina.

Í Sportpakkanum heyrum við í Víkingum sem unnu í dag sannfærandi sigur í Sambandsdeild Evrópu og í Íslandi í dag hittir Vala Matt sjónvarpsmanninn Jón Ársæl sem sýnir á sér nýja og einlæga hlið þessa dagana.

Þetta og margt fleira í opinni dagskrá á samtengdum rásum Bylgjunnar, Stöðvar 2 og Vísis klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×