Enski boltinn

Amorim: Pep Guardiola er svo miklu betri en ég akkúrat núna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rúben Amorim var tolleraður eftir leikinn í gær þar sem Sporting vann 4-1 stórsigur á Englandsmeisturum Manchester City.
Rúben Amorim var tolleraður eftir leikinn í gær þar sem Sporting vann 4-1 stórsigur á Englandsmeisturum Manchester City. Getty/Gualter Fatia

Rúben Amorim er að koma á Old Trafford og það er óhætt að segja að stuðningsmenn Manchester United séu orðnir spenntir. Ekki síst eftir gærkvöldið þegar Portúgalinn stýrði Sporting Lissabon til 4-1 sigurs á nágrönnunum í Manchester City í Meistaradeildinni.

Það er hætt við því að væntingarnar fari nú upp úr öllu valdi og Amorim var því umhugað að reyna að slá aðeins á þær í viðtal eftir leikinn. Hann ætlar líka ekki að spila eins fótbolta með United.

Þetta var síðasti heimaleikur Sporting undir stjórn Amorim. Fyrir leik talaði hann um það á léttu nótunum að stuðningsmenn United myndu að halda að nýr Sir Alex Ferguson væri mættur ef hann mynda vinna City. Hann vann ekki aðeins Englandsmeistarana heldur burstaði þá.

Hefur mikla trú á nýja félagi

Amorim talaði vel um Pep Guardiola eftir leikinn. ESPN segir frá.

„Hann er svo miklu betri en ég akkúrat núna. Ég hef samt mikla trú á mínu nýja félagi. Við munum byrja á lágu þrepi en við munum svo bæta liðið og klúbbinn,“ sagði Rúben Amorim eftir leikinn.

Viktor Gyökeres skoraði þrennu í leiknum og hefur verið orðaður við stórlið í janúar.

„Viktor verður að klára tímabilið en þá fer hann kannski eitthvað annað,“ sagði Amorim sem hefur gert stórstjörnu úr Svíanum.

Fyrsti leikur Amorim með Manchester United verður á móti Ipswich Town eftir komandi landsleikjahlé. Hann mætir síðan Guardiola og City liðinu aftur í desember.

„Þegar ég er hjá mínu næsta félagi þá verð ég að nálgast leikinn öðruvísi. Ég get ekki tekið mikið frá þessum leik af því að við munum spila öðruvísi í framtíðinni. Bæði eru söguleg félög en það verður allt öðruvísi leikur,“ sagði Amorim.

Les engin ensk blöð

Hann ætlar ekki að lesa nein blöð í Englandi þegar hann kemur þangað.

„Ég mun örugglega ekki lesa neitt í sex mánuði. Ég gerði það sama hjá Sporting. Ég ætla ekki að lesa neitt eða skoða neitt. Það er eina leiðin fyrir mig svo að ég geti unnið mitt starf,“ sagði Amorim.

„Fyrri hálfleikurinn var mjög erfiður fyrir okkur. Við vorum mjög heppnir og svo skoruðum við tvisvar á upphafsmínútunum í síðari hálfleik. Þá hjálpaði okkur að það var frábært andrúmsloft og svo allt annað því tengt. Þetta var stórkostlegt kvöld,“ sagði Amorim.

Tilbúinn fyrir þessa áskorun

„Þessi úrslit eru blekkjandi því við vorum mjög heppnir í þessum leik í kvöld. Þessi stund með mínum leikmönnum eftir leik og hvernig þeir fögnuðu þessum sigri var samt mjög sérstök. Þessi stund með stuðningsmönnum var líka mjög sérstök. Þegar ég kem í ensku úrvalsdeildina þá verð ég kominn í nýjan heim með allt annarri pressu,“ sagði Amorim.

„Ég mun reyna að vera sá sami. Þetta verður mjög gaman og ég er tilbúinn fyrir þessa áskorun,“ sagði Amorim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×