Innlent

Risa vatns­renni­braut keypt í Þor­láks­höfn fyrir 150 milljónir

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Svona mun rennibrautin líta út í sundlauginni í Þorlákshöfn þar sem stigahúsið verður 12 metra hátt og upphitað.
Svona mun rennibrautin líta út í sundlauginni í Þorlákshöfn þar sem stigahúsið verður 12 metra hátt og upphitað. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Ein glæsilegasta og hæsta vatnsrennibraut landsins verður í sundlauginni í Þorlákshöfn en Sveitarfélagið Ölfus hefur fjárfest í tveimur braut fyrir 150 milljónir króna, sem verða settar saman í eina. Stigahúsið upp í brautina verður tólf metra hátt.

Í mörgum sundlaugum landsins eru vatnsrennibrautir sem njóta mikilla vinsælda hjá börnum og unglingum og stundum líka fullorðnum. Vatnsrennibrautir draga marga í laugarnar og eftir því sem þær eru hærri og stærri þá eru auknar líkur að sú sundlaugin verði valin.

Sundlaugin í Þorlákshöfn er vinsæl laug með barnarennibraut en nú á að bæta við risa braut eins og Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, þekkir manna best.

Elliði Vignisson er bæjarstjóri í Ölfusi og ætlar fyrstu ferðina í nýju rennibrautinni.Vísir/Egill

„Já, við erum að endurgera og endurnýja útivistarsvæðið við sundlaugina en laugin gegnir mjög veigamiklu hlutverki í mannlífinu hérna í Þorlákshöfn og nú er komin tími á endurnýjun rennibrautanna“.

Þetta verða rosalega flottar rennibrautir, er það ekki?

„Jú, þetta verða flottustu rennibrautir á landinu að mínu mati og bætir þá við allt það framboð, sem hér er fyrir börn og ungmenni. Okkur á að finnast gaman heima hjá okkur, við eigum ekki alltaf að þurfa að vera á faraldsfæti til að hafa gaman, og maðurinn lifir ekki á brauðinu einu saman, þannig að hluti af velferðinni er að búa til skemmtilegt mannlíf og menningu og aðstöðu fyrir börn og ungmenni,“ segir Elliði.

Og fer bæjarstjórinn fyrstu ferðina næsta vor?

„Já, ég hef þegar pantað mér Speedo skýlu, ég ætlaði að fá mér hana í hlébarðalitunum en hún verður sennilega í zebralitunum en hún á að vera mjög hraðskreið í svona rennibrautum,“ segir Elliði hlæjandi.

Íbúar sveitarfélagsins og í næsta nágrenni bíða spenntir eftir nýju rennibrautinni.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×