Liver­pool á­fram eftir fjörugan síðari hálf­leik

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Cody Gakpo skoraði fyrstu tvö mörk Liverpool í kvöld.
Cody Gakpo skoraði fyrstu tvö mörk Liverpool í kvöld. Andrew Powell/Getty Images

Liverpool er komið í 8-liða úrslit enska deildarbikarsins eftir 2-0 útisigur á Brighton & Hove Albion. Hollendingurinn Cody Gakpo skoraði bæði mörk gestanna.

Eftir markalausan fyrri hálfleik tók Gakpo málin í eigin hendur. Hann lék á mann og annan áður en hann þrumaði boltanum í netið frá vítateigslínunni. Frábært mark í alla staði og staðan orðin 0-1.

Heimamenn fengu fín færi til að jafna metin áður en Gakpo tvöfaldaði forystuna á 63. mínútu með frábæru skoti niðri í vinstra hornið. Hann vann boltann, óð inn á teig og lúðraði knettinum í netið.

Þegar tæpar tíu mínútur lifðu leiks átti Evan Ferguson hörkuskot sem Vítězslav Jaroš varði. Því miður fyrir hinn unga markvörð féll boltinn fyrir fætur Simon Adingra sem minnkaði muninn í 1-2. Heimamönnum tókst hins vegar ekki að nýta markið til neins þar sem Luis Díaz skoraði þriðja mark gestanna skömmu síðar og gerði þar með út um leikinn, eða hvað?

Tariq Lamptey minnkaði muninn á lokamínútu venjulegs leiktíma og gaf heimamönnum þar með líflínu. Þeim tókst þó ekki að nýta hana og lauk leiknum með sigri gestanna eftir fjögurgar lokamínútur. Liverpool þar með komið í 8-liða úrslit enska deildarbikarsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira