Fótbolti

Tónlistarkonan Olivia Rodrigo fékk að heyra það út af kjöri Rodri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tónlistarkonan Olivia Rodrigo og knattspyrnumaðurinn Rodri eru með svipað nafn og það skapaði ákveðinn misskilning.
Tónlistarkonan Olivia Rodrigo og knattspyrnumaðurinn Rodri eru með svipað nafn og það skapaði ákveðinn misskilning. Getty/Frazer Harrison/MI News

Nettröllin lentu í ákveðnu vandamáli þegar þau vildu herja á spænska miðjumanninn Rodri eftir að hann fékk Gullhnöttinn, Ballon d'Or, á mánudagskvöldið.

Það er þekkt vandamál í dag að frægt íþróttafólk fær yfir sig alls konar leiðindi á samfélagsmiðlum þegar einhver er ósáttur með þau. Vettvangur til að koma þessum leiðindum á framfæri er svo sannarlega til staðar með öllum þessum samfélagsmiðlum sem eru í boði.

Margir aðdáendur Vinícius Júnior og Real Madrid voru virkilega ósáttir með að Brasilíumaðurinn fékk ekki þessi virtustu verðlaun fótboltamanna.

Þessir ósáttu aðdáendur hans fóru á netið og leituðu af samfélagsmiðlum spænska miðjumannsins Rodri sem hafði betur í kjörinu.

Það gekk skiljanlega mjög illa vegna þess að besti fótboltamaður heims er ekki með neina samfélagsmiðla.

Rodri finnst ekki á Instagram, Tik Tok, Facebook eða á X-inu. Hann hafði því ekki birt neina mynd af sér stoltum með Gullhnöttinn eftirsótta.

Sum nettröllin voru ekki með það á hreinu eða sættu sig bara ekki við þá staðreynd.

Þeir fóru að leita að aðgangi Rodri og margir þeirra fundu í staðin samfélagsmiðla bandarísku tónlistarkonunnar Oliviu Rodrigo.

Eftirnafn hennar, Rodrigo, er auðvitað mjög líkt Rodri. Hann heitir líka fullu nafni Rodrigo Hernández Cascante.

Tónlistarkonan fékk því að heyra það út af kjöri Rodri og kom örugglega alveg af fjöllum. Alls konar skilaboð ekkert tengd henni.

Hún hefur auðvitað verið upptekin á hljómleikaferðlagi, Guts World Tour, og hélt tónleika síðast í Sydney í Ástralíu.

Rodri er heldur ekkert á leiðinni á samfélagsmiðla á næstunni enda þekktur fyrir að lifa mjög venjulegu lífi laus við öll látalæti og óþarfa athygli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×