Innlent

Þörf á ítar­legri rann­sóknum vegna Vestmannaeyjaganga

Kristján Már Unnarsson skrifar
Formaður starfshóps um fýsileika Vestmannaeyjaganga, Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur, kynnti skýrsluna í dag. 
Formaður starfshóps um fýsileika Vestmannaeyjaganga, Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur, kynnti skýrsluna í dag.  Innviðaráðuneyti

Veggjöld gætu staðið undir kostnaði við Vestmannaeyjagöng. Þörf er á ítarlegri jarðfræðirannsóknum áður en hægt verður að kveða upp úr með það hvort slík göng séu fýsileg. Þetta eru helstu niðurstöður starfshóps sem skilaði skýrslu um málið til innviðaráðherra í dag.

Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2. Starfshópurinn undir formennsku Kristínar Jónsdóttur, eldfjalla- og jarðskjálftafræðings, telur skynsamlegast að göngin myndu ná landi við bæinn Kross í Austur-Landeyjum. Þau þyrftu að liggja niður á allt að 220 metra dýpi undir sjávarmáli sökum þess hversu djúpt sé niður á fast berg milli lands og Eyja.

Berglög við bæinn Kross mæla með því að þar verði gangamunni Landeyjamegin.Grafík/Sara Rut Fannarsdóttir

Nokkrir mismunandi valkostir við gerð jarðganga voru skoðaðar en niðurstaðan sú að horfa ætti til hefðbundinnar aðferðar; að bora og sprengja göngin. Kristín segir þó enn of mikla í óvissu um jarðfræðina.

„Það þarf að fara í ítarlegri rannsóknir og kanna jarðlögin, í rauninni bæði þá við Heimaey og þar sem gangnamunnar verða,“ segir Kristín

Skoða þurfi jarðlög, berg, misgengi og jarðhita á jarðgangaleiðum.

Horft frá Heimaey til suðurstrandarinnar.Vilhelm Gunnarsson

Hópurinn leggur til að unnin verði rannsókn í fjórum þrepum á jarðlögum og á hafsbotninum. Þá fyrst sé unnt að meta stofnkostnað og fýsileika jarðganga. Þrepaskipt rannsókn, með kjarnaborunum og bergmálsmælingum, er hins vegar talin kosta allt að 550 milljónir króna.

„Umræðan mun örugglega halda áfram. Svarið var hvorki já né nei í skýrslunni enda var kannski ekki hægt að ætlast til þess. En ég vil undirstrika að það hefði getað orðið nei. En það er alls ekki nei,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.Innviðaráðuneyti

Starfshópurinn telur sýnt að ávinningur af Vestmannaeyjagöngum yrði mikill, einkum vegna mikils tímasparnaðar vegfarenda og aukinnar umferðar ferðamanna. Ennfremur að veggjöld gætu staðið undir kostnaði í heild eða að hluta auk þess sem rekstur ferju myndi sparast.

Þannig telur starfshópurinn að veggjöld gætu skilað tveggja til þriggja milljarða króna árlegum tekjum. Þá fengist annar eins sparnaður ef ekki þyrfti að reka ferju milli lands og Eyja.

Ráðherrann vill að farið verði í meiri rannsóknir.

„En ávinningurinn er þvílíkur að það væri ábyrgðarhluti að gera ekkert meir. Og í mínum huga get ég bara svarað því að mér finnst eðlilegt að - við erum nú á þeim stað að það er ný ríkisstjórn væntanleg eftir næstu kosningar – þetta er verkefni sem slík ríkisstjórn þarf að taka,“ segir innviðaráðherra.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Býður Íslendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarðgöng Evrópu

Íslensk stjórnvöld eiga í viðræðum við bandarískt frumkvöðlafyrirtæki á sviði kyndilborunar um að bora jarðgöng mun ódýrar og hraðar en áður hefur þekkst. Fyrirtækið býðst til að byrja á því að bora lagnagöng til Vestmannaeyja á næsta ári á eigin ábyrgð.

Ríkisstjórnin leggur áform um Vestmannaeyjagöng á hilluna

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu Kristjáns Möller samgönguráðherra um að leggja öll áform um gerð Vestmannaeyjaganga á hilluna. Tillagan var gerð í ljósi hins mikla kostnaðar og óvissu vegna jarðfræðilegra aðstæðna við gerð jarðganganna, sem gerð var grein fyrir í nýrri skýrslu um málið frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. um mat á kostnaði á gerð jarðganga milli Vestmannaeyja og lands. Samgönguráðherra gerði grein fyrir þessari niðurstöðu ríkisstjórnarinnar á fréttamannafundi áðan.

Engin göng til Eyja - Árni Johnsen vill rannsaka áfram

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu samgönguráðherra um að hætta öllum áformum um jarðgöng til Vestmannaeyja vegna mikils kostnaðar og óvissu. Árni Johnsen, alþingismaður, telur alla flokka hafa svikið kosningaloforð um að ljúka rannsóknum vegna málsins. Samkomulag hefur náðst um fimmtán aukaferðir á ári með Herjólfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×