Enski boltinn

Sonur Dag­nýjar leiddi Bowen inn á fyrir leikinn gegn United

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Brynjar Atli Ómarsson heldur hér í hægri hönd Jarrods Bowen, fyrirliða West Ham United.
Brynjar Atli Ómarsson heldur hér í hægri hönd Jarrods Bowen, fyrirliða West Ham United. west ham

Brynjar Atli Ómarsson, sonur Dagnýjar Brynjarsdóttur, fyrirliða kvennaliðs West Ham United, leiddi fyrirliða karlaliðs félagsins inn á fyrir leikinn gegn Manchester United á sunnudaginn. West Ham vann leikinn og daginn eftir var knattspyrnustjóri United, Erik ten Hag, svo rekinn.

Bowen skoraði sigurmark West Ham úr vítaspyrnu í uppbótartíma í leiknum á Lundúnaleikvanginum í fyrradag. Hamrarnir komust yfir með marki Crysencio Summerville á 74. mínútu en Casemiro jafnaði fyrir Rauðu djöflana sjö mínútum síðar.

Bowen reyndist svo hetja West Ham og örlagavaldurinn fyrir Ten Hag en honum var sagt upp störfum í gær.

Sem fyrr sagði leiddi Brynjar Ómarsson, sonur Dagnýjar, Bowen inn á völlinn fyrir leikinn á sunnudaginn. 

Á X-aðgangi kvennaliðs West Ham birtust myndir af skælbrosandi Brynjari sem hefur svo væntanlega brosað enn breiðar í leikslok.

Mamma hans er nýbyrjuð að spila aftur með West Ham eftir að hafa eignast bróður Brynjars 7. febrúar. 

Dagný hefur leikið alla fimm leiki Hamranna í ensku úrvalsdeildinni en þeir eru á botni hennar með tvö stig. Næsti leikur West Ham er gegn Tottenham á sunnudaginn.


Tengdar fréttir

Bowen tryggði West Ham sigur á United

Jarrod Bowen tryggði West Ham United sigur á Manchester United með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur á Lundúnaleikvanginum 2-1, Hömrunum í vil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×