Lífið

Smart og hlý­legt fjölskylduhús

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Húsið var byggt árið 2008 og hefur verið endurnýjað á glæsilegan máta.
Húsið var byggt árið 2008 og hefur verið endurnýjað á glæsilegan máta.

Við Úlfarsbraut í Reykjavík er finna fallegt 207 fermetra parhús sem var byggt árið 2008. Heimilið er hlýlegt og smart, umvafið ljósri litapallettu.

Eignin er á tveimur hæðum og samanstendur af fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, sjónvarpsrými, þvottahúsi og opnu og björtu al­rými með eld­húsi, stofu og borðstofu.

Flæðið í húsinu er gott og skipulagið nútímalegt. Ásett verð fyrir eignina er 149,9 milljónir.

Eldhús, stofa og borðstofa renna saman í eitt þar sem aukin lofthæð og gólfsíðir gluggar hleypa inn mikilli birtu í rýmið. Þaðan er útgengt á rúmgóðar yfirbyggðar suður svalir.

Í eld­hús­inu er stílhrein hvít inn­rétt­ing með hvítum kvartssteins á borðum. Fyrir miðju er vegleg eldhúseyja með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Notalegur borðkrókur stelur senunni í rýminu og gefur því mikinn karakter.

Stofan er opin og björt, umvafin ljósum litatónum. Á veggjum má sjá falleg listaverk, meðal annars eftir Ella Egilsson, sem fanga augað.

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.