Innlent

Páll Valur vill for­ystu­­sæti fyrir Sam­­fylkinguna í Suður­­kjör­­dæmi

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Páll Valur býður krafta sína fram fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi.
Páll Valur býður krafta sína fram fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Vísir/Einar

Páll Valur Björnsson býður sig fram í forystusæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir komandi kosningar. Páll sat á þingi fyrir Bjarta Framtíð árin 2013 - 2016, og var varaþingmaður Samfylkingarinnar 2017 - 2021.

„Ég var hvattur til að sækja um forystusæti og þá er reiknað með að það séu sæti eitt og tvö. Ég var ekkert endilega að hugsa um þetta en svo eftir nokkra umhugsun lét ég slag standa. Það kostar ekkert að prófa þetta,“ segir Páll.

Brennur fyrir málefnum Grindvíkinga og barna

Páll er Grindvíkingur og hann sat í bæjarstjórn árin 2018 - 2022 fyrir Samfylkinguna. Hann segir að Grindvíkingar þurfi á sterkri rödd að halda á þingi. Síðustu mánuðir hafi verið erfiðir fyrir hann og aðra Grindvíkinga.

„Ég var mjög framarlega á þingi í málefnum barna og þeirra sem höllum fæti standa í samfélaginu og taldi mig eiga ýmislegt eftir ógert þar. Þannig ég lét til leiðast núna þegar fólk var að hvetja mig til þess að gefa kost á mér,“ segir Páll.

„Auðvitað brennur á manni að skapa sátt í samfélaginu og byggja upp gott og mannlegt samfélag sem að stendur saman að öllum helstu málum. Sundurlindið í þessari þjóð er með ólíkindum, og þegar ég var á þingi fyrir Bjarta Framtíð barðist ég fyrir því að fólk ynni betur saman,“ segir hann.

Hann kveðst hrifinn af málefnastarfinu sem hefur verið leitt af Kristrúnu síðustu tvö árin. „Hún er að finna púlsinn í landinu og leggja fram þau mál sem brenna á þjóðinni. Ég er bara mjög hrifinn af því hvernig hún er að gera þetta og hvernig hún er að tækla þessi mál.

Páll bauð sig fram til Alþingis haustið 2016 undir merkjum Bjartrar Framtíðar og komst þá ekki á þing.

„Ég var einn af þeim sem var mjög mótfallinn þessu ríkisstjórnarsamstarfi 2016 og það fór eins og það fór. Ég var ekkert sáttur við það,“ segir Páll. 

Björt Framtíð myndaði ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Viðreisn árið 2017, en sleit samstarfinu seinna sama ár.


Tengdar fréttir

Grindvíkingar vænti þess að verða borgaðir út

Páll Valur Björnsson, kennari í Fisktækniskólanum og íbúi í Grindavík, segir að væntingar Grindvíkinga til þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin hyggst kynna í dag séu þær að íbúar verði borgaðir út og eignir þeirra keyptar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×