Innlent

Stemningin „eftir at­vikum á­gæt“

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Bjarni að loknum ríkisstjórnarfundi.
Bjarni að loknum ríkisstjórnarfundi. vísir/vilhelm

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hyggst leggja skiptingu ráðuneyta Vinstri grænna fyrir forseta á ríkisráðsfundi á morgun, sem haldinn verður á Bessastöðum klukkan 18. Hann segir ráðherra VG samt sem áður verða áfram ráðherrar. 

Bjarni tekur við matvælaráðuneyti og félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, sem áður tilheyrðu Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur og Guðmundi Inga Guðbrandssyni ráðherrum VG. Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra tekur við innviðaráðuneyti sem hefur tilheyrt Svandísi Svavarsdóttur formanni VG.

Þessar ráðstafanir eru gerðar innan ríkisstjórnarinnar vegna ákvörðunar Vinstri grænna um að taka ekki þátt í starfstjórn fram að kosningum. Svandís Svavarsdóttir tilkynnti þá ákvörðun í gær en síðdegis í dag var síðasti fundur ríkisstjórnar flokkanna þriggja haldinn.

Bjarni ætlar að leggja fyrrgreinda skiptingu fyrir forsetann á morgun. Í samtali við fréttastofu eftir fund sagði hann að sátt hafi verið innan stjórnar um skiptinguna.

„Það var ágætis sátt,“ segir Bjarni. Ríkisráðsfundur verði haldinn með forseta á morgun, þar sem hann vonast til að þessi lausn verði staðfest. Á meðan starfstjórnin starfi verði ráðherrar VG hins vegar enn tæknilega ráðherrar. 

„Það er í sjálfu sér meginregla að það er alltaf einhver ráðherra í málaflokkum, eins og fram kemur í forsetaúrskurði.“

Stemningin á síðasta fundinum hafi verið  „eftir atvikum ágæt“. Nú sé markmiðið að klára fjárlagafrumvarp og einbeita sér að kosningum.

„Á þessum fundi var farið yfir formsatriðin varðandi starfstjórnir, hvað þær gera og hvert þeirra hlutverk er. Við hyggjumst síðan í starfstjórninni halda fundi til að undirbúa tillögur fyrir þingið vegna fjárlaganna sérstaklega.“

Sigurður Ingi segir sömuleiðis að samkomulag hafi verið um þessar ráðstafanir. Ofan á þeirra eigin starfskyldur bætist við að klára verkefni sem lagt hefur verið upp með. 

„Eins og á flestum ríkisstjórnarfundum var andrúmsloftið ágætt, við erum manneskjur sem berum virðinu fyrir hvort öðru þó við séum með ólíkar skoðanir,“ segir Sigurður Ingi. Það sé sárt að sjá samstarf þessara flokka ljúka með þessum hætti. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×