Tíska og hönnun

Nær­fata­módelin sneru aftur eftir sex ára hlé

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Systurnar Gigi Hadid og Bella Hadid á sviði ásamt fleiri fyrirsætum og Vittoria Ceretti þeim við hlið.
Systurnar Gigi Hadid og Bella Hadid á sviði ásamt fleiri fyrirsætum og Vittoria Ceretti þeim við hlið. Dimitrios Kambouris/Getty Images

Nærfatamódel á vegum Victoria's Secret sneru aftur á svið í gærkvöldi eftir sex ára hlé. Tískusýningin var því sérstaklega vegleg í þetta skiptið og fluttu einungis kvenkyns tónlistarmenn tónlistaratriði á hátíðinni. Allar helstu stjörnur fyrirsætuheimsins létu sig ekki vanta.

Forsvarsmenn fyrirtækisins tilkynntu árið 2019 að þeir væru hættir að skipuleggja sína árlegu tískusýningu. Tískusýningin átti þá æ minni vinsældum að fagna og auk þess voru forsvarsmenn fyrirtækisins harðlega gagnrýndir fyrir að ýta undir líkamsdýrkun. Í þetta skiptið segja þeir að tískusýningin sé hugsuð fyrir allar konur, á sama hvaða aldri þær eru og sama hvernig þær líta út.

Sýningin var sýnd í beinni á netinu og má sjá hana hér fyrir neðan í heild sinni. Myndir eru neðst í fréttinni.

Reynsluboltar í bland við nýliða

Meðal þeirra tónlistarmanna sem stigu á svið voru K-pop stjarnan Lisa, suður-afríska söngkonan Tyla og poppgoðsögnin Cher. Meðal ofurfyrirsæta sem stigu á svið í nærfötum Victoria's Secret voru systurnar Gigi og Bella Hadid og Adriana Lima.

Gamlir reynsluboltar úr fyrirsætuheiminum létu sig heldur ekki vanta. Þannig mætti Kate Moss á sviðið og líka Claudia Schiffer sem síðast kom fram á allra fyrstu tískusýningu fyrirtækisins árið 1997. Þá mætti fyrrverandi forsetafrú Frakklands Carla Bruni einnig á sýninguna. 

Ashley Graham lét sig heldur ekki vanta og sagðist hafa ákveðið að slá til, til þessa að sýna fram á að allar konur mættu taka pláss á slíkum tískusýningum. Alex Consani skráði sig svo á spjöld sögunnar þegar hún var fyrsta trans konan til að koma fram á tískusýningunni.  Þá lokaði sjálf Tyra Banks úr raunveruleikaþáttunum America's Next Top Model öllu saman svo athygli vakti.

Ef Instagram færslur birtast ekki er ráð að endurhlaða síðuna (e. refresh). 

Bella Hadid gekk tískupallinn í rauðu við lag Cher, Believe. Dimitrios Kambouris/Getty Images

Adriana Lima eins og fiðrildi.Kevin Mazur/Getty Images

Gigi Hadid mætti með vængi.Kevin Mazur/Getty Images

Irina Shayk stórglæsileg í svörtu.Dimitrios Kambouris/Getty Images

Carla Bruni rifjaði upp gamla takta.Dimitrios Kambouris/Getty Images

Joan Smalls lét sig ekki vanta.Dimitrios Kambouris/Getty Images

Ashley Graham var stórglæsileg og sagðist hafa mætt fyrir allar konur heimsins sem hefðu upplifað sig óvelkomnar á tískusýningar.Taylor Hill/WireImage

Tyra Banks lokaði sýningunni.TheStewartofNY/FilmMagic)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×