Körfubolti

Rifjuðu upp tónlistarfortíð Helga Magg: „Ég skammast mín núll fyrir Sveitta“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Helgi Már Magnússon í myndbandinu við lagið „Boogie Boogie“.
Helgi Már Magnússon í myndbandinu við lagið „Boogie Boogie“.

Helgi Már Magnússon er vel þekktur fyrir afrek sín á körfuboltasviðinu. Færri vita þó um fortíð hans í tónlistarbransanum. Hún var rifjuð upp í Bónus Körfuboltakvöldi.

Helgi og Pavel Ermolinskij voru gestir Stefáns Árna Pálssonar í Bónus Körfuboltakvöldi á sunnudaginn. Stefán Árni hóf þáttinn á óvæntu útspili.

„Ég ætla að segja ykkur svolítið. Ég veit ekki hvort þú vitir þetta Pavel en Helgi Magg - og ég trúi ekki að ég hafi aldrei talað um þetta á síðasta tímabili - var einu sinni poppari,“ sagði Stefán Árni. „Ég var ekkert, ég er,“ svaraði Helgi léttur.

Þá kom það upp úr krafsinu að Helgi var í hljómsveitinni Sveittir gangaverðir í kringum aldamótin. Þeir eru hvað þekktastir fyrir lagið „Boogie Boogie“.

Klippa: Bónus Körfuboltakvöld - Tónlistarmaðurinn Helgi Magg

„Við vorum heit hljómsveit, og erum enn. Þessir menn hittast reglulega. Ég er ekki duglegur þarna. Ég er ekki einu sinni í þessu lagi. Þetta er góður vinskapur og ég skammast mín núll fyrir Sveitta. Þetta er alvöru hljómsveit,“ sagði Helgi sem rifjaði síðan upp góða sögu af því þegar Fannar Ólafsson lét hann flytja „Boogie Boogie“ fyrir liðsfélaga sína í háskóla.

Innslagið úr Bónus Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×