Lífið

„Ég myndi aldrei fara í sam­band með ein­hverjum fá­vita“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Guðrún Svava eða Gugga í gúmmíbát er sannkallaður lífskúnstner. Hún er viðmælandi í Einkalífinu.
Guðrún Svava eða Gugga í gúmmíbát er sannkallaður lífskúnstner. Hún er viðmælandi í Einkalífinu. Vísir/Vilhelm

„Ég myndi örugglega ekki fara á fyrsta deit einhvers staðar á almannafæri, ég get ekki verið að láta að sjá mig,“ segir Guðrún Svava betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát. Hún er viðmælandi í Einkalífinu og ræðir meðal annars stefnumótamenninguna hérlendis, eða öllu heldur takmörk hennar, og draumaprinsinn.

Hér má sjá viðtalið við Guggu í gúmmíbát í heild sinni:

Erfitt að fara á fyrsta deit

Aðspurð hvort hún sé eitthvað að deita segir Gugga hlæjandi:

„Nei, thank god. Ég hef aldrei átt maka og það er heldur ekki eitthvað sem ég er að sækjast mikið í.“

Hún segir varla hægt að tala um stefnumótamenningu hérlendis.

„Þetta er hræðilegt. Mér líður eins og fólk hittist niður í bæ, fari heim saman og út frá því verði eitthvað. Þetta er líka lítið land og erfitt að fara á fyrsta deit. Ég myndi örugglega ekki fara á fyrsta deit einhvers staðar á almannafæri, ég get ekki verið að láta sjá mig.“

Pabbi setti háan standard

Hún segir fyrirmyndir sínar án efa vera foreldra sína.

„Ég hef horft á sambandið hjá foreldrum mínum. Mér finnst pabbi minn vera svo gott dæmi fyrir mig og þess vegna er enginn búinn að ná þeim standard. Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita.“

Draumamaki Guggu er eftirfarandi:

„Góðhjartaður og fyndinn, það er mjög mikilvægt að vera fyndinn. 

Pældu í því að vera með einhverjum sem er tía í að vera sætur en er leiðinlegur. 

Hann verður að vera lífsglöð manneskja, einhver sem byggir mann upp en rífur mann ekki niður.“

Gugga lítur upp til foreldra sinna og er því með háan standard þegar það kemur að makavali.Vísir/Vilhelm

Verður ekki kvíðin

Gugga nýtur lífsins til hins ítrasta og er rísandi stjarna í samfélagsmiðlaheiminum. Hún hefur sömuleiðis verið í útvarpinu og gefið út lag með sveitinni Húbba Búbba.

„Ég hef alltaf verið ég sjálf og það hefur reynst mér vel. Ég er ekkert að ofhugsa. Mér er svo sama, sem er held ég gott. Fólk er svo oft kvíðið yfir alls konar hlutum en ég bara verð ekki kvíðin.“

Hún er ekkert að mikla hlutina fyrir sér eða setja sér einhver afmörkuð markmið.

„Ég er ekki mikið í plönunum, Ég er bara að lifa í núinu, vona það besta og vona að ég verði hamingjusöm. Ég er allavega mjög hamingjusöm núna og mig langar bara að mér líði svona alltaf.“


Tengdar fréttir

„Ég nenni ekkert að hafa eitthvað að sanna“

„Mér finnst ég vera mjög sjálfsörugg og ég elska sjálfa mig,“ segir samfélagsmiðlastjarnan Guðrún Svava, betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát. Hún hefur gengið í gegnum ýmislegt á lífsleiðinni en hún er viðmælandi í Einkalífinu.

„Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“

„Ég fæ mikið af óþægilegum skilaboðum, mörg á dag. Ég reyni bara að sleppa því að opna þau en mér finnst þau líka fyndin, það er svo mikið af klikkuðu fólki til í heiminum. Ég hef verið beðin um að gera myndbönd þar sem ég ropa en ég geri auðvitað ekkert svoleiðis,“ segir Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í Gúmmíbát sem er viðmælandi í nýjasta þætti Einkalífsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×