Innlent

„Við þurfum að flýta okkur hægt í þessari stöðu“

Lovísa Arnardóttir og Heimir Már Pétursson skrifa
Kristrún ræddi við fréttamenn að loknum fundi með forsetanum.
Kristrún ræddi við fréttamenn að loknum fundi með forsetanum. Vísir/Vilhelm

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segir liggja fyrir að forsætisráðherra hafi ekki beðist lausnar fyrir sína ríkisstjórn. Ræða þurfi hvort setja eigi þess í stað starfsstjórn.

„Við í Samfylkingunni viljum kosningar sem fyrst og við styðjum það að þing verði rofið. En það skiptir mái hvernig hlutirnir eru gerðir og við þurfum að flýta okkur hægt í þessari stöðu,“ sagði Kristrún eftir fund sinn með forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, í dag.

Hún sagði Bjarna Benediktsson forsætisráðherra ekki hafa beðist lausnar fyrir sig og sína ríkisstjórn og það þurfi að ræða hvort það sé skynsamlegra að setja á starfsstjórn við þessar aðstæður.

Hún segist hafa gert forseta grein fyrir þessari skoðun sinni en að það þurfi að ræða þetta. Hún segir þetta tækifæri skipta máli fyrir þjóðina.

Hún segir Samfylkinguna vinna að því að koma sínum áherslum á framfæri og hún og Bjarni munu takast á næstu vikurnar. Hún hlakki til þess.

Kristrún fyrst

Kristrún fór fyrst formanna á fund forsetans í dag. Á eftir henni kom svo Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins. 

Næst fer svo Inga Sæland formaður Flokks fólksins á fund forsetans klukkan 16. Eftir það kemur Þórhildur Sunna Ævarsdóttir í Pírötum og svo formenn stjórnarflokkanna. Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins kemur á fund forsetans klukkan 17.30 og Svandís Svavarsdóttir formaður VG klukkan 18:15.


Tengdar fréttir

Það henti VG að vera í „svolitlum slag“ við Sjálfstæðisflokkinn

Bæði formaður VG og formaður Framsóknar hafa lýst ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra um stjórnarslit, sem óvæntum. Þetta hafi komið þeim í opna skjöldu. Ólafur Þ Harðarson, stjórnmálafræðiprófessor var beðinn um að meta stöðu flokkanna eftir ákvörðun Bjarna.

Bein útsending: Formenn flokka funda með forseta Íslands

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna funda með forseta Íslands hver á fætur öðrum í kjölfar fundar forseta með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra í morgun þar sem hann óskaði eftir þingrofi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×