Viðskipti erlent

United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk

Kristján Már Unnarsson skrifar
Nýja flugbrautin í Nuuk verður opnuð í fullri 2.200 metra lengd í næsta mánuði. Til vinstri sést nýja flugstöðin.
Nýja flugbrautin í Nuuk verður opnuð í fullri 2.200 metra lengd í næsta mánuði. Til vinstri sést nýja flugstöðin. Greenland Airports

Bandaríska flugfélagið United Airlines tilkynnti í gær að það hefði ákveðið að hefja beint áætlunarflug milli New York og Nuuk, höfuðstaðar Grænlands, næsta sumar. Flugið hefst 14. júní og stendur yfir sumartímann til 24. september 2025.

Flogið verður tvisvar í viku frá Newark-flugvelli og lent á hinum nýja alþjóðaflugvelli Grænlendinga, sem fyrirhugað er að opna formlega í næsta mánuði, þann 28. nóvember. Flugtíminn milli New York og Nuuk er um fjórir tímar.

Flugvél United Airlines af gerðinni Boeing 737 Max 8.Kevin Carter/Getty Images

„Ferðamenn munu nú hafa beinan aðgang að norðurslóðaævintýrum á Grænlandi. United verður eina flugfélagið sem tengir Bandaríkin beint við Nuuk, nyrstu höfuðborg heims, sem opnar hlið að háklassa gönguferðum og heillandi dýralífi undir miðnætursól sumarsins.

Beint flug United mun gera Grænland aðgengilegra en nokkru sinni fyrr fyrir bandaríska ferðamenn,“ segir í tilkynningu United Airlines.

„Við erum stolt af því að bjóða United Airlines velkomið til Nuuk. Þessi nýja flugleið er stórt skref í þá átt að gera Grænland aðgengilegra fyrir heiminn – og heiminn aðgengilegri Grænlandi. Við hlökkum til að taka á móti enn fleiri gestum til að upplifa fallega landið okkar,“ er haft eftir Jens Lauridsen, forstjóra Greenland Airports, í tilkynningu flugvallafélags Grænlands.

Búið er að malbika síðasta hlutann af nýju flugbrautinni.Greenland Airports

Nýlega lauk verktakinn Munck Group malbikun síðasta áfangans á 2.200 metra langri flugbrautinni. Núna er unnið að margskyns frágangi áður en hægt verður að taka hana í notkun í fullri lengd. Áður var búið að opna hluta brautarinnar, 930 metra.

„Nokkur minniháttar verkefni bíða enn á og við flugbrautina áður en hægt er að taka hana í notkun 28. nóvember – þegar höfuðborg Grænlands verður í fyrsta sinn mögulegt að taka á móti stærri flugvélum beint frá Evrópu, Ameríku og öðrum heimshlutum,“ segir flugvallafélag Grænlands.


Tengdar fréttir

Grænlendingar opna nýja alþjóðaflugstöð

Stór áfangi næst í flugvallauppbyggingu Grænlands á mánudag þegar ný alþjóðaflugstöð verður opnuð í höfuðstaðnum Nuuk. Byggingin er um áttaþúsund fermetrar að stærð og er henni ætlað að rúma áttahundruð farþega samtímis, fjögurhundruð brottfararfarþega og fjögurhundruð komufarþega.

Styttist í að Nuuk fái nýjan alþjóðaflugvöll

Flugvallafélag Grænlands, Kalaallit Airports, hefur formlega gefið út opnunardag nýs alþjóðaflugvallar í Nuuk, höfuðstað Grænlands. Stóri dagurinn verður eftir átta mánuði, 28. nóvember 2024. Þetta er fimm árum eftir að flugvallargerðin hófst og meira en árs seinkun frá upphaflegri áætlun.

Grænlendingar hefja beint flug til Kanada

Air Greenland, þjóðarflugfélag Grænlendinga, hyggst hefja áætlunarflug milli Grænlands og Norður-Kanada í sumar. Flogið verður milli höfuðstaðarins Nuuk og bæjarins Iqaluit, höfuðstaðar Nunavut, sjálfsstjórnarsvæðis Inúíta í Kanada.

Fyrsta Chi­cago-vélin lenti á Kefla­víkur­flug­velli

Bandaríska flugfélagið United Airlines hóf í dag í fyrsta sinn beint flug milli Keflavíkurflugvallar og Chicago. Þetta er í fyrsta sinn sem United býður upp á beint flug milli Íslands og Chicago en bandarískt flugfélag hefur ekki áður boðið upp á beint flug á þessari leið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×