Neytendur

Spá minnstu verð­bólgunni í þrjú ár

Bjarki Sigurðsson skrifar
Una Jónsdóttir er forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans.
Una Jónsdóttir er forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans. Vísir/Vilhelm

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga lækki úr 5,4 prósentum í 5,1 prósent milli mánaða í október. Verðbólgan var síðast í 5,1 prósenti í desember árið 2021.

Þetta kemur fram í nýrri hagsjá bankans. Húsnæðisliðurinn hefur mest áhrif til hækkunar milli mánaða en þar sem deildin gerir ráð fyrir því að liðurinn hækki töluvert minna en fyrir ári mun það hafa áhrif til lækkunar á ársverðbólgu. 

Skýring Seðlabankans á hvað verðbólga er:

Verðbólga er skilgreind sem viðvarandi hækkun almenns verðlags og er mæld sem tólf mánaða breyting vísitölu neysluverðs. Sú vísitala mælir meðalverð á vörum og þjónustu sem heimili á Íslandi kaupa í hverjum mánuði. Verðbólga felur í sér að verðgildi og kaupmáttur peninga minnkar, þ.e.a.s. minna magn vöru og þjónustu fæst fyrir hverja krónu.

Matarkarfan hefur lækkað um 0,7 prósent síðustu tvo mánuði en verðathugun deildarinnar bendir til þess að karfan hækki lítillega nú, langmest vegna verðhækkana á kjöti. Því er spáð að matarkarfan hækki um 0,2 prósent milli mánaða. 

Flugfargjöld til útlanda hækka um 1,9 prósent og gert er ráð fyrir að það verði nokkurn veginn jafn dýrt að fljúga til útlanda í október í ár og í fyrra. Þá er því spáð að verð á bensíni og dísilolíu lækki um tæplega 0,1 prósent milli mánaða. 

Hvað varðar framtíðarverðbólgu spáir deildin því að verðbólgan verði 4,5 prósent í nóvember, 4,4 prósent í desember og 4,2 prósent í janúar á næsta ári. Á síðustu tíu árum var verðbólgan mest í febrúar á síðasta ári þegar hún var 10,2 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×