Erlent

Segjast hafa ráðist á rúss­neskt ríkis­út­varp á af­mælis­degi Pútín

Kjartan Kjartansson skrifar
Vladírmír Pútín (f.m.) í sjónvarpssal á ríkissjónvarpsstöð þegar allt lék þar í lyndi.
Vladírmír Pútín (f.m.) í sjónvarpssal á ríkissjónvarpsstöð þegar allt lék þar í lyndi. Vísir/EPA

Úkraínumenn eigna sér heiður af stórfelldri tölvuárás á stærsta ríkisfjölmiðil Rússlands á afmælisdegi Vladímírs Pútín forseta. Vefsíður stærstu ríkismiðla Rússlands liggja niðri og talsmaður ríkisstjórnarinnar segir árásina án fordæma.

Árásin beindist að kerfum VGTRK sem á helstu sjónvarpsstöðvar Rússlands, þar á meðal fréttastöðina Rossiya-24. Sjónvarps- og útvarpssendingar hafa haldið áfram en vefsíður lágu niðri í dag. Dimtrí Peskov, talsmaður stjórnvalda í Kreml, sagði sérfræðinga vinn að því að koma tölvukerfum aftur í gagnið og finna slóð þrjótanna sem réðust á þau.

Heimildarmaður Reuters-fréttastofunnar innan úkraínsku ríkisstjórnarinnar sagði þarlenda hakkara hafa staðið að árásinni sem hafi verið gerð á 72 ára afmælisdegi Pútín. Reuters gat ekki staðfest þá fullyrðingu.

„Úkraínskir hakkarar óskuðu Pútín „til hamingju“ með afmælið með því að gera stórfellda árás á rússneska ríkissjónvarps- og útvarpsfélagið,“ sagði úkraínski heimildarmaðurinn.

Þá herma heimildir rússneska fjölmiðilsins Gazeta.ru að árásin hefði einnig beinst að innri kerfum VGTRK. Hakkarar hafi þurrkað gögn út af netþjónum og síma- og netsambandslaust sé hjá fyrirtækinu. Langan tíma gæti tekið að koma kerfunum aftur í gang.

María Zakharova, talskona rússneska utanríkisráðuneytisins, sagði árásin hluta af „blendingshernaði“. Rússneskir fjölmiðlar hefðu lengi verið skotmark vestrænna ríkja. Rússnesk stjórnvöld ætluðu sér að taka málið upp á alþjóðlegum vettvangi, þar á meðal hjá UNESCO, menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna.

„Guð blessi keisarann!“

Þótt tölvuárásin hefði spillt fyrir afmælisgleði Pútín gat hann huggað sig við hugheilar kveðjur bandamanna sinna. „Guð blessi keisarann!“ sagði Alexander Dugin, áhrifamikill öfgaþjóðernissinni sem vill endurreisa rússneska keisaraveldið í kveðju til Pútín á samfélagsmiðlinum Telegram.

Ramzan Kadyrov, leiðtogi Téténíu, sagði afmælidag þjóðarleiðtogans þýðingarmikinn fyrir allt föðurlandið. Kadyrov lýsir sjálfum sér sem fótgönguliða Pútín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×