Viðskipti innlent

Loks opnað fyrir um­sóknir um hlutdeildarlán

Árni Sæberg skrifar
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun heyrir undir Svandísi Svavarsdóttur innviðaráðherra.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun heyrir undir Svandísi Svavarsdóttur innviðaráðherra. Vísir/Vilhelm

Opnað hefur verið að nýju fyrir umsóknir um hlutdeildarlán hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum íbúðum og standa til boða fyrir fyrstu kaupendur og þau sem ekki hafa átt íbúð síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum.

Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að lánunum sé þannig ætlað að auðvelda fólki að brúa bilið við fasteignakaup og komast inn á húsnæðismarkaðinn.

Níu milljarðar

Frá því að fyrst var byrjað að veita hlutdeildarlán árið 2020 hafi slík lán verið veitt til kaupa rúmlega 900 íbúða og heildarfjárhæð hlutdeildarlána nemi um níu milljörðum króna. Það sem af er þessu ári hafi 2,7 milljörðum króna verið úthlutað til alls 219 íbúða. Alþingi hafi í sumar samykkt að hækka lánsfjárheimild til hlutdeildarlána úr þremur milljörðum í fjóra milljarða króna.

Hluti af aðgerðum vegna kjarasamninga

Hlutdeildarlánin séu hluti af aðgerðum ríkisins til stuðnings fjögurra ára kjarasamningum á vinnumarkaði. Aðgerðirnar styðji við sameiginleg markmið stjórnvalda og samningsaðila um heilbrigðari húsnæðismarkað og fjölskylduvænna samfélag.

Þess megi geta að stofnframlög til almennra íbúða séu einnig hluti af þessum stuðningi og HMS auglýsi eftir umsóknum einu sinni eða oftar á ári. Á þessu ári séu 7,3 milljarðar króna til úthlutunar, en það sem af er ári hafi  HMS úthlutað 3,3 milljörðum króna til 265 íbúða. 

Á næstu vikum verði opnað fyrir þriðju úthlutun stofnframlaga 2024.


Tengdar fréttir

„Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“

Fólk bíður í örvæntingu, íbúðir standa tómar og húsnæðisverð hækkar á meðan beðið er eftir því að afgreiðsla hlutdeildarlána hefjist að nýju að sögn fasteignasala. Fjölskylda sem hefur beðið í næstum hálft ár með undirritaðan kaupsamning kallar eftir svörum og telja sig heppin að hafa húsnæði á meðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×