Innlent

Stóra sánumálið: „Örugg­lega ýmis­legt við­gengist sem myndi ekki við­gangast í öðrum klefum“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Fréttastofa innti forstöðumann og gesti Vesturbæjarlaugar eftir viðbrögðum við afnámi kynjaskiptingar í sánuklefum laugarinnar.
Fréttastofa innti forstöðumann og gesti Vesturbæjarlaugar eftir viðbrögðum við afnámi kynjaskiptingar í sánuklefum laugarinnar.

Gestum Vesturbæjarlaugar gremst mörgum að kynjaskiptir sánuklefar heyri nú sögunni til í lauginni. Forstöðumaður segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að loka karlasánunni, sem var orðin fúin og ógeðsleg. Þá stemmi kynjasameiningin vonandi stigu við óviðeigandi hegðun sem hafi verið erfitt að uppræta.

Við skelltum okkur í heimsókn í hina umdeildu sánu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Í Vesturbæjarlaug hafa löngum verið í boði tveir sánaklefar, einn fyrir konur og annar fyrir karla. Karlasánunni var nýverið lokað og kvennasánan gerð aðgengileg öllum kynjum. 

Líflegar umræður spunnust um málið á Facebook í vikunni og flestir þar virtust gráta breytinguna. „Gjörsamlega misheppnað“, „bókstaflega ömurlegt“, og „synd að missa einn af fáum stöðum þar sem kynin eru aðgreind“ reyndust meginstefin. Nokkrir lýstu sig þó ánægða með að komast í sánu með sínum nánustu af gagnstæðu kyni. 

Skiptra skoðana gætti einnig meðal laugargesta í Vesturbænum þegar fréttastofu bar að garði í gær. Viðbrögð laugargestanna Reynis, Karvels og Eddu má kynna sér í innslaginu hér fyrir ofan.

Kynjaskiptar sánur heyra raunar til algjörra undantekninga í sundlaugum Reykjavíkur. Þær er nú aðeins að finna í tveimur laugum af átta, annars vegar í Árbæjarlaug þar sem infrarauðar sánur eru í báðum búningsklefum, og hins vegar í Breiðholtslaug. Nektarbanni var reyndar komið á í sánunum í Breiðholtslaug í sumar, sem vakti talsverða gremju gesta.

Fúinn viður og stækur fnykur

Anna Kristín Sigurðardóttir forstöðumaður Vesturbæjarlaugar leiddi okkur um gamla sánuklefa karlanna í heimsókn okkar í gær. Hún kveðst skilja þá vel sem hugnast sameiningin illa. Upphaflega stóð til að gera við karlasánuna í sumar og opna hana aftur. Þegar á hólminn var komið þóttu þær viðgerðir ekki réttlætanlegar, þar sem allsherjar yfirhalning sánumála stendur fyrir dyrum í lauginni.

Þessi sána hérna, karlasánan, hún var mjög illa farin. Við finnum það ekki núna en þegar er kveikt á henni þá gýs upp stækur fnykur? 

„Jú, ég get staðfest það,“ segir Anna. 

Þannig að þetta var bara það eina í stöðunni? 

„Já. Og bara ótrúlega leitt að þetta skuli hafa komið svona skyndilega af því að það var ekki alveg það sem við ætluðum okkur.“

Kynjaskipting í sánum Vesturbæjarlaugar heyrir þar með sögunni til. Anna vonast til að geta kynnt teikningar á nýju sánarými fyrir jól. Þar verður reist stór infrarauð sána, sem og hefðbundin sána, fyrir öll kyn. Kvennasánan, sem nú er opin öllum, hverfur semsagt einnig á braut á endanum. Þá lítur Anna á sameininguna, og lokun karlasánunar, sem öryggismál. Orðrómar um óviðeigandi, kynferðislega hegðun hafa lengi loðað við karlasánuna í Vesturbæjarlaug, sem og sánurými á fleiri stöðum.

„Það hefur örugglega ýmislegt viðgengist sem myndi kannski ekki viðgangast í öðrum klefum og erfitt að uppræta. Þar af leiðandi teljum við þetta aukið öryggi, að taka burt þessa kynjaskiptingu, því þá getum við líka boðið upp á öryggisvöktun,“ segir Anna.


Tengdar fréttir

Nekt bönnuð í sánunni og sund­laugar­gestir ó­sáttir

Fastagestir Breiðholtslaugar eru óánægðir með breytingar á reglum tengdum sánunni við laugina sem nýlega tóku gildi. Finnska sendiráðið útnefndi sánuna þá bestu í Reykjavík fyrir tveimur árum, en nú vilja einhverjir svipta sánuna þeim titli. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×