Lífið

Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Gerður Hrund og unnusti hennar Jakob eru að byggja sér draumahúsið sitt í Hveragerði.
Gerður Hrund og unnusti hennar Jakob eru að byggja sér draumahúsið sitt í Hveragerði. Vísir/Einar

Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, seldi einbýlishús sitt við Þrymsali 1 í Kópavogi á dögunum. Um er að ræða 404 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum sem var byggt árið 2008.

Kaupendur hússins eru Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka, og Stella María Ármann kennari. Sam­kvæmt kaup­samn­ingi greiddu hjónin 239 milljónir fyrir eignina.

Húsið var fyrst auglýst til sölu í júní 2022. Þá var óskað eftir tilboði í eignina en fasteignamatið var 161,6 milljónir.

Gerður og Jakob eru að byggja sér draumahúsið sitt í Hveragerði. Í samtali við Vísi á sínum tíma greindi Gerður frá því að þar ættu þau fjölskyldu og vini sem þau hlökkuðu mikið til að vera nær.

Hún sagði að það yrði erfitt að kveðja húsið í Kópavogi en foreldrar hennar byggðu það. Húsið er staðsett nálægt golfvellinum GKG með stórbrotnu útsýni.

Eigninni hefur verið skipt upp í tvær íbúðir og telur samtals sex svefnherbergi og fjögur baðherbergi.


Tengdar fréttir

Áhrifavaldar skáluðu fyrir fjölgun fullnæginga

Fríður hópur áhrifavalda mætti í Ásmundarsal við Freysgötu í gærkvöldi og skálaði fyrir auknu aðgengi að kynlífstækjum í ljósi þess að Lyfja hefur hafið sölu á unaðstækjum undir formerkjum heilsubótar landsmanna.

Gerður í Blush orðlaus yfir auglýsingum Play

Eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush segist orðlaus yfir auglýsingum flugfélagsins Play þar sem stór kvenmannsbrjóst og stinnur karlmannskroppur koma við sögu. Margir gagnrýna auglýsingarnar en aðrir segja fólki að anda með nefinu og kunna vel að meta.

Stjörnum prýdd dómnefnd í Ungfrú Ísland

Þann 14. ágúst næstkomandi keppast 25 stúlkur um titilinn Ungfrú Ísland. Keppnin fer fram í Gamla Bíói og dómnefnd er skipuð fimm stórstjörnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×