Rafíþróttir

Du­sty aftur á toppinn eftir 4. um­ferð

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Kano byrjaði vel á móti Sögu í Ljósleiðaradeildinni í gær en Saga mætti mótlætinu af hörku og endaði með að ná 2-0 sigri.
Kano byrjaði vel á móti Sögu í Ljósleiðaradeildinni í gær en Saga mætti mótlætinu af hörku og endaði með að ná 2-0 sigri.

Fjórðu um­­­­­­­­­ferð Ljós­­­­­leiðara­­­­­deildarinnar í Coun­ter Stri­ke lauk í gær­­­­kvöld með þremur leikjum þar sem Du­sty sigraði Raf­ík 2-0, Saga lagði Kano 2-1 og Þór hafði betur gegn ÍA 2-0.

Tómas Jóhannsson og Jón Þór Hermannsson lýstu viðureign Kano og Sögu í beinni útsendingu á milli þess sem þeir greindu stöðuna í Ljósleiðaradeildinni almennt. Þeir töldu úrslit kvöldsins nokkuð fyrirsjáanleg og spá þeirra um auðvelda sigra Dusty og Þórs í sínum leikjum gekk eftir.

Úrslit kvöldsins hafa ekki mjög dramatískt áhrif á stöðu liðanna sem þeim Tómasi og Jóni Þóri þykir minna mjög á stöðuna eins og hún var í fyrra. Dusty endurheimti efsta sætið af Ármanni, Þór er kominn aftur í 2. Sæti og Ármann er í 3. Sæti. Þá kemur Saga í 4. sæti og Veca er í 5. sæti.

Fimmta umferð Ljósleiðaradeildarinnar byrjar á þriðjudaginn, 1. október með tveimur leikjum þar sem Ármann og Höttur mætast annars vegar og ÍA og Venus hins vegar.

Dusty er aftur komið á toppinn í Ljósleiðaradeildinni eftir 4. umferð.

Tengdar fréttir

Ár­menningar tap­lausir á toppnum

Fjórða um­­­­­­­ferð Ljós­­­­leiðara­­­­deildarinnar í Coun­ter Stri­ke hófst í gær­­­kvöld með tveimur leikjum þar sem Höttur sigraði Venus 0-2 og Veca tapaði fyrir Ár­manni 0-2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×