Viðskipti innlent

Átta sagt upp hjá Arion banka

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Átta starfsmönnum Arion banka var sagt upp í gær.
Átta starfsmönnum Arion banka var sagt upp í gær. Vísir/Vilhelm

Átta manns var sagt upp hjá Arion banka í gær. Upplýsingafulltrúi bankans segir uppsagnirnar lið í breytingum innan einstakra sviða. Þær séu ekki liður í stórum skipulagsbreytingum.

Uppsagnirnar ná til þriggja sviða bankans. Það eru fyrirtækja- og fjárfestingabankasvið, upplýsingatæknisvið og svið rekstrar og menningar.

Í samtali við Vísi segir Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka, að í bankanum starfi 800 manns.

„Í svona stóru fyrirtæki er alltaf ákveðin starfsmannavelta. Þarna er um að ræða áherslu- og skipulagsbreytingar innan tiltekinna eininga, sem leiða til þess að það eru þarna átta einstaklingar sem létu af störfum hjá okkur í gær,“ segir Haraldur.

Ólík svið hafi verið að fara í breytingar samtímis, að hans sögn. Ekki sé um stórar skipulagsbreytingar að ræða. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×