Upp­gjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heima­mönnum

KA varð á dögunum bikarmeistari. Það mátti sjá örlitla bikarþynnku í mannskapnum í dag en KA var manni fleiri allan síðari hálfleikinn en tókst samt ekki að landa sigri.
KA varð á dögunum bikarmeistari. Það mátti sjá örlitla bikarþynnku í mannskapnum í dag en KA var manni fleiri allan síðari hálfleikinn en tókst samt ekki að landa sigri. vísir/Diego

Nýkrýndir bikarmeistarar KA máttu sætta sig við 3-3 jafntefli gegn HK í fyrstu umferð neðri hluta Bestu deildar karla. KA var langt frá sínu besta í dag og ekki laust við að einhver bikarþynnka hafi verið til staðar en KA lék manni fleiri allan síðari hálfleik.

KA byrjaði leikinn ekki vel og voru það gestirnir sem voru ívið hættulegri í upphafi án þess þó að skapa sér nein hættuleg færi.

Heimamenn komust þó betur inn í leikinn eftir um stundarfjórðung og á 22. mínútu komust þeir í forystu. Daníel Hafsteinsson tók þá snoturt þríhyrningsspil með Hallgrími Mar og þrumaði svo boltanum í stöngina og Dagur Ingi Valsson var manna fyrstur að átta sig, hirti frákastið og renndi boltanum í autt markið.

Eftir markið dofnaði aftur yfir heimamönnum og gengu gestirnir á lagið. Eftir hálftíma leik átti HK frábæra sókn þar sem boltinn gekk manna á milli allt frá öftustu línu upp allan völlinn og endaði á því að Birnir Breki kom boltanum á Dag Örn Fjeldsted sem var rétt fyrir utan teiginn vinstra megin og skrúfaði boltann fast upp í fjær hornið í fyrsta. Frábært mark og staðan jöfn.

Eitthvað virtist bikarþynnkan vera að hrjá KA menn því HK var miklu betri aðilinn það sem eftir lifði hálfleiksins. Á fyrstu mínútum eftir jöfnunarmarkið átti Eiður Gauti skot rétt fram hjá og bæði Þorsteinn Aron og Birnir Breki fengu sannkölluð dauðfæri en Steinþór Már varði meistaralega í bæði skiptin.

Leikurinn var fjörugur á þessum tímapunkti og á 40. mínútu fékk Ásgeir Sigurgeirsson gott færi en skaut langt fram hjá þegar hann var sloppinn einn í gegn.

Á 43. mínútu, markamínútunni frægu, kom svo markið sem var búið að liggja í loftinu hjá gestunum, en þeir unnu þá boltann á eigin vallarhelmingi og sóttu hratt upp völlinn og Birnir Breki lagði boltann meðfram jörðinni til hliðar á Arnþór Ara sem kom einn og óvaldaður inn á teiginn og renndi boltanum auðveldlega í markið og kom HK í 2-1 forystu.

Örstuttu eftir markið fór Atli Hrafn Andrason í tæklingu og missti af boltanum en felldi Dag Inga Valsson í staðinn. Atli hafði fengið gult spjald fyrr í leiknum og fékk fyrir þetta brot sitt annað gula spjald og þar með rautt og gestirnir því einum færri út leikinn. Nokkuð harður dómur að mínu mati.

Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn betur og nýttu sér liðsmuninn vel. Á 53. mínútu barst boltinn út til hins 17 ára gamla Mikaels Breka Þórðarsonar rétt fyrir utan teig, sem hugsaði sig ekki tvisvar um, heldur lagði boltann fyrir sig og smurði hann upp í fjær hornið. Fyrsta mark hans fyrir KA í sínum fyrsta byrjunarliðsleik og var fögnuðurinn innilegur.

Leikur KA dofnaði aðeins eftir markið og spilaði HK vel einum færri. Það var því rýtingur fyrir þá röndóttu þegar Ásgeir Sigurgeirsson skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu Harley Willard eftir tæpan 70 mínútna leik og kom KA í 3-2 forystu.

Allt virtist benda til þess að KA myndi fá stigin þrjú sem í boði voru en HK-ingar voru á öðru máli og einum færri jöfnuðu þeir leikinn í uppbótartíma. Ívar Örn Jónsson tók hárfína aukaspyrnu inn á teig þar sem varamaðurinn Atli Arnarson mætti og skallaði boltann í netið. Staðan 3-3.

Gestirnir voru svo í raun óheppnir að stela ekki hreinlega sigrinum því KA hafði varla tekið miðju þegar Tumi Þorvarsson var mættur í dauðafæri einn gegn Steinþóri Má sem bjargaði frábærlega og skiptu liðin að lokum stigunum jafnt á milli sín.

Stjörnur og skúrkar

Mikael Breki Þórðarson verður að enda sem stjarna leikins þar sem hann skorar algjört draumamark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik fyrir uppeldisfélagið auk þess að eiga mjög fínan leik á miðjunni.

En þá er svo sem illa vegið að Stubbnum sjálfum, Steinþóri Má Auðunssyni, sem varði fjölmörg dauðafæri í dag og tryggði KA í raun stig undir lokin.

Dagur Ingi Valsson var frískastur KA manna í dag og var engu þynnku að sjá á þeim mæta pilti.

Hjá HK heillaði Birkir Breki Burknason mest en KA menn réðu illa við hann á kantinum oft á tíðum og átti hann tvær stoðsendingar og var í raun klaufi að skora ekki líka.

Dagur Örn Fjeldsted átti einnig fínan leik og skoraði mark. Þá kom varamaðurinn Atli Arnarson með alvöru hugarfar inn í leikinn; skoraði jöfnunarmarkið og lét vel finna fyrir sér.

Undir venjulegum kringumstæðum væri Atli Hrafn Andrason skúrkurinn fyrir að láta reka sig af velli en dómurinn var nokkuð harður og efldist HK liðið í raun eftir þetta.

Skúrkurinn er kannski bara bikarþynnkan fræga fyrir það eitt að láta sjá sig í dag.

Atvik leiksins

Það er markið sem Mikael Breki skoraði í sínum fyrsta byrjunarliðsleik fyrir uppeldisfélagið. Frábært augnablik fyrir hann og mun hann eflaust horfa á þetta mark aftur og aftur fram eftir kvöldi.

Dómarinn

Fyrir utan rauða spjaldið, sem er auðvitað stór ákvörðun, átti Erlendur nokkuð fínan leik og ekki mikið út á hann hægt að setja að öðru leyti.

Stemmning og umgjörð

Nýkrýndir bikarmeistarar KA tjölduðu öllu til og bauðst fólki að koma og fá mynd af sér með bikarnum fyrir leik og í hálfleik. Vel var mætt miðað við leiktímann sem var kl. 16:15 á miðvikudegi sem stafar auðvitað af því sem á undan er gengið hjá liðinu. Stemningin á leiknum sjálfum var ekkert frábær en fólki var eflaust nokkuð kalt.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira