Innlent

Sjálf­sagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa er­lenda fanga

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Ráðherra segir málið ekki hafa verið kannað, enn sem komið er.
Ráðherra segir málið ekki hafa verið kannað, enn sem komið er. Vísir/Vilhelm

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segis sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa fanga með erlendan ríkisborgararétt, sérstaklega þá sem koma hingað til lands til þess eins að fremja afbrot.

Frá þessu er greint í Morgunblaðinu.

Yfirfull fangelsi hafa leitt til þess að önnur ríki hafa skoðað að fara þessa leið, til að mynda Bretland.

„Okkar áskoranir í refsivörslukerfinu eru ekki séríslenskar heldur eru þau lönd sem við viljum helst bera okkur saman við, til dæmis Danmörk og Bretland, að glíma við sambærilegar áskoranir hvað varðar yfirfull fangelsi. Þau líta á þessa lausn sem raunhæfan möguleika til að leysa þann vanda,“ er haft eftir Guðrúnu.

Hlutfall erlendra fanga í afplánun á Íslandi var 28 prósent í fyrra og hefur aldrei verið hærra. Þá er meðalbiðtími eftir afplánun eitt ár og tíu mánuðir og á þriðja hundrað manns á boðunarlista.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×