Lífið

Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Ugla Stefanía fer yfir víðan völl í Einkalífinu.
Ugla Stefanía fer yfir víðan völl í Einkalífinu. Vísir/Vilhelm

Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir fékk nóg af því að vera í hringiðu drama í Samtökunum '78 fyrir átta árum síðan og ákvað að flytjast búferlum til Bretlands þegar hún kynntist ástinni sinni óvænt á ráðstefnu erlendis. Ugla segir skrítið að flytja aftur til Íslands eftir átta ár úti, margt hafi breyst.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í Einkalífinu á Vísi þar sem Ugla Stefanía er gestur. Ugla Stefanía er kynjafræðingur að mennt og hefur um árabil staðið í stafni í mannréttindabaráttu hinsegin samfélagsins á Íslandi og í Bretlandi. Þar hefur hún farið í fjölda viðtala, meðal annars til Piers Morgan og árið 2019 var hún á lista yfir hundrað áhrifamestu konur Bretlandseyja.

Hægt er að horfa á þáttinn hér fyrir neðan. Hann er einnig að finna á helstu hlaðvarpsveitum.

Klippa: Einkalífið - Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir

Besta ákvörðun sem hún hefur tekið

Ugla fer í þættinum yfir víðan völl, ræðir meðal annars æskuna norður í sveit og menntaskólaárin á Akureyri. Hún ræðir líka ákvörðun sína um að fara í kynjafræði og tímabilið árið 2016 þegar hún ákvað að flytja til Bretlands. Hún hitti kærastið sitt Fox Fisher í fyrsta sinn á ráðstefnu Transgender Europe á Ítalíu.

„Fox var semsagt að taka viðtöl við fólk á ráðstefnunni og ég var eitt af þessum nöfnum sem Fox átti að taka viðtal við. Við kynnumst í gegnum það og náðum mjög vel saman,“ segir Ugla. Þarna hafi hún verið nýkomin úr langtímasambandi og alls ekki á þeim buxunum að huga aftur að tilhugalífinu.

„Ég ætlaði bara á ráðstefnu að hitta vini mína, hafa gaman og ætlaði alls ekkert að spá í svona dating rugli,“ segir Ugla hlæjandi. Svo hafi orðið að hún hafi misst af fluginu sínu heim þar sem hún ruglaðist á dögum.

„Og þá enda ég á að fljúga bara til Bretlands með Fox eftir þessa ráðstefnu,“ segir Ugla. Á þessum tíma var Ugla í hringiðu rifrilda innan Samtakanna '78 um umsókn BDSM á Íslandi að samtökunum sem var umdeild á þeim tíma.

„Ég var bara eitthvað: Af hverju flyt ég ekki bara til Bretlands? Hætti bara þessu drama og elti bara ástina og hef það ógeðslega næs?! Og ég tók bara þá ákvörðun að gera það og það er besta ákvörðun sem ég hef tekið.“

Hægt er að horfa á þáttinn á sjónvarpsvef Vísis. Einnig er hægt að hlusta á þáttinn á öllum helstu hlaðvarpsveitum.


Tengdar fréttir

„Hann er bók­staf­lega að dreifa mis­vísandi og hættu­legum upp­lýsingum“

Ummæli Jordan Peterson um transbörn og aðgerðir þeirra, sem hann lét falla í Íslandi í dag á sunnudag, hafa vakið reiði meðal transsamfélagsins á Íslandi. Sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks segir Peterson dreifa misvísandi og hættulegum upplýsingum sem geti valdið ungu fólki skaða, sé þeim fylgt.

Gefi raun­sanna mynd af stefnu­móta­hremmingum trans kvenna

„Karlmenn vilja oft stundum bara deita trans konur en ekki sjást með þeim á almannafæri,“ segir Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, talsmanneskja fyrir réttindum trans fólks, í umræðum um Netflix-þættina umtöluðu Baby Reindeer. Hún hefur sjálf átt sína reynslu af eltihrelli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×