Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Atli Ísleifsson skrifar 29. ágúst 2024 07:14 Salman Rushdie hefur á ferli sínum sent frá sér fimmtán skáldsögur. Bókmenntahátíð Bresk-bandaríski rithöfundurinn Salman Rushdie hlýtur Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness í ár. Verðlaunin voru fyrst afhent árið 2019 en Rushdie mun veita verðlaununum viðtöku í Háskólabíói föstudaginn 13. september næstkomandi.
Frá þessu segir í tilkynningu frá Bókmenntahátíð Reykjavíkur. Þar segir að verðlaunin séu veitt annað hvert ár alþjóðlega þekktum rithöfundi fyrir að eiga þátt í endurnýjun frásagnarlistarinnar. Á þá leið hljóðaði einmitt rökstuðningur sænsku Akademíunnar þegar Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955. „Verðlaununum er líka ætlað að halda á lofti nafni Halldórs Laxness á alþjóðlegum vettvangi. Að þeim standa Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Reykjavík, forsætisráðuneytið, menningar- og viðskiptaráðuneytið, Íslandsstofa, Gljúfrasteinn og Forlagið, útgefandi Halldórs Laxness á Íslandi. Háskóli Íslands er samstarfsaðili Alþjóðlegu bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2024. Verðlaunin voru fyrst afhent árið 2019 þegar breski rithöfundurinn Ian McEwan veitti þeim viðtöku. Tveimur árum seinna hlaut tyrkneski höfundurinn Elif Shafak verðlaunin og árið 2022 hlotnuðust þau úkraínska höfundinum Andrei Kúrkov. Í ár hlýtur verðlaunin rithöfundurinn Salman Rushdie. Hann mun veita þeim viðtöku föstudaginn 13. september. Venju samkvæmt mun forsætisráðherra afhenda Rushdie verðlaunin, sem eru peningaverðlaun að upphæð 15.000 evrum með verðlaunapeningi að auki. Halla Oddný Magnúsdóttir og Halldór Guðmundsson munu svo leiða samræður við Rushdie á sviði eftir afhendinguna. Í rökstuðningi valnefndar segir meðal annars að skáldsögur Salmans Rushdies séu heillandi, heimspekilegar og upplýsandi sögur fyrir lesendur sem eru tilbúnir að uppgötva nýja heima. Fyrir lesendur um heim allan hafi ímyndin um Rushdie, sem í meira en þrjátíu ár hefur haldið áfram að skrifa skáldsögur sínar þrátt fyrir dauðadóm klerkastjórnarinnar í Íran, í framhaldi af útgáfu verksins Söngvar Satans, og banatilræðið sem honum var sýnt í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum, orðið að táknmynd hugrekkis og óbeygjanlegs vilja. Bókin Hnífur, þar sem Rushdie lýsir banatilræðinu og afleiðingum þess, kemur út á íslensku hjá Forlaginu í þýðingu Árna Óskarssonar af þessu tilefni. Verðlaunaathöfnin og dagskráin með Salman Rushdie verður í Háskólabíó föstudaginn 13. september og hefst hún klukkan 17:30. Öll eru velkomin og það er enginn aðgangseyrir, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir miðum í gegnum miðasöluvefinn Tix.is. Bóksala verður á staðnum þar sem hægt verður að kaupa nýju bókina, Hníf, áritaða af höfundi. Í valnefnd Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness árið 2024 eru úkraínski rithöfundurinn Andrei Kúrkov, sem hlaut verðlaunin árið 2022, Egill Helgason fjölmiðlamaður og Stella Soffía Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Alþjóðlegu bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík. Um Salman Rushdie Salman Rushdie hefur sent frá fimmtán skáldsögur. Á meðal þeirra eru Miðnæturbörn, (sem hlaut Booker-verðlaunin og var valin besta Booker-verðlaunabók allra tíma) og Söngvar Satans. Fimm skáldsögur Rushdies hafa verið á stuttlista Booker-verðlaunanna. Rushdie hefur einnig sent frá sér sjálfsævisöguleg verk, ritgerðasöfn og smásögur. Salman Rushdie hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín sem hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál. Árið 2023 var hann á lista tímaritsins Time yfir hundrað áhrifamestu manneskjur ársins,“ segir í tilkynningunni.
Bókmenntir Bókmenntahátíð Halldór Laxness Menning Tengdar fréttir Ian McEwan tekur við alþjóðlegum verðlaunum Halldórs Laxness Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti verðlaunin en hún er sjálf mikill lestrarhestur. Hún bíður spennt eftir næstu bók höfundar sem fjallar um kakkalakka sem vaknar sem forsætisráðherra. 19. september 2019 13:06 Elif Shafak handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti í dag rithöfundinum Elif Shafak alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness á Bókmenntahátíðinni í Reykjavík. Að afhendingu lokinni flutti Elif Shafak fyrirlestur Halldórs Laxness. 11. september 2021 20:00 Andrej Kúrkov hlýtur bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness Úkraínski rithöfundurinn Andrej Kúrkov hlýtur Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness í ár og mun hann koma til Íslands þann 7. september til að veita þeim viðtöku. 23. ágúst 2022 09:08 Mest lesið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Lífið Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Lífið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Khalid kemur út úr skápnum Lífið Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Lífið Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið „Þetta var það erfitt, að við vorum öll dofin“ Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Fleiri fréttir Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Sjá meira
Ian McEwan tekur við alþjóðlegum verðlaunum Halldórs Laxness Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti verðlaunin en hún er sjálf mikill lestrarhestur. Hún bíður spennt eftir næstu bók höfundar sem fjallar um kakkalakka sem vaknar sem forsætisráðherra. 19. september 2019 13:06
Elif Shafak handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti í dag rithöfundinum Elif Shafak alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness á Bókmenntahátíðinni í Reykjavík. Að afhendingu lokinni flutti Elif Shafak fyrirlestur Halldórs Laxness. 11. september 2021 20:00
Andrej Kúrkov hlýtur bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness Úkraínski rithöfundurinn Andrej Kúrkov hlýtur Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness í ár og mun hann koma til Íslands þann 7. september til að veita þeim viðtöku. 23. ágúst 2022 09:08