Innlent

Beinin sem fundust virðast vera af dýri

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Beinin sem fundust á framkvæmdasvæðinu virðast við fyrstu skoðun vera af dýri.
Beinin sem fundust á framkvæmdasvæðinu virðast við fyrstu skoðun vera af dýri. Mynd/Vilhelm

Lögreglan segir að bein sem fundust við gatnaframkvæmdir í miðborg Reykjavíkur í morgun virðist við fyrstu skoðun vera af dýri.

Elín Agnes Kristínardóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.

Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur haft beinin til rannsóknar í dag.

Lögregla hafði talsvert viðbragð við Egilsgötu í morgun eftir að bein fundust við vinnu við framkvæmdir á svæðinu.


Tengdar fréttir

Rannsaka bein sem fundust í miðborginni

Tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar bein sem fundust á framkvæmdasvæði í miðborg Reykjavíkur í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×