„Fólk er einfaldlega hrætt“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. júní 2024 13:51 Rósa Björk Brynjólfsdóttir er ein þeirra sem misstu sæti sitt eftir endurtalningu. Stöð 2/Egill Allt bendir til þess að þingkosningarnar sem nú eru hafnar í Frakklandi verði sögulegar, að sögn fyrrverandi þingmanns sem búsettur er í París. Hún kveðst aldrei hafa upplifað viðlíka spennu og ótta í frönsku samfélagi og nú, þar sem mikilla breytinga sé að vænta fari kosningarnar eins og kannanir bendi til.
Í síðustu skoðanakönnunum fyrir kosningar mældist Þjóðfylkingin, hægri-harðlínuflokkur Marine le Pen, með 36 prósenta fylgi. Bandalag vinstri flokka mældist með 29 prósenta fylgi og flokkur Emmanuels Macron forseta með 20 prósent. „Og þetta sýnir okkur að það er í vændum mjög líklega sögulegar niðurstöður í þingkosningum í Frakklandi,“ segir Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fyrrverandi þingmaður sem búsett er í París. Þetta séu gríðarleg tíðindi. Þjóðfylkingin mælist þarna í fyrsta sinn stærsti flokkurinn og væntanlegur stórsigur hennar hefði í för með sér miklar breytingar í frönsku samfélagi. „Til að mynda hafa þau boðað það að henda úr landi öllum þeim sem eru með tvískiptan ríkisborgararétt, það eru þrjár og hálf milljón manna, einnig hafa þau boðað það að skerða félagsleg réttindi fólks sem er erlendum uppruna, sem er þó að vinna hér og borga sína skatta og útsvar. Þetta þýðir líka að veðmál Macrons er ekki að ganga upp og hans staða veikist með þessu veðmáli sem hann tók.“ Aldrei upplifað aðra eins spennu Þá hefur áhugi Frakka á kosningunum sjaldan verið meiri. „Það eru sjö prósent fleiri sem eru búin að kjósa núna á hádegi í Frakklandi en fyrir tveimur árum síðan. Og það er gríðarlega stór tala,“ segir Rósa. Rósa segir að hver sem úrslitin verði muni frönsk stjórnmál áfram einkennast af mikilli spennu. Boðað hefur verið til mótmæla víða um land, fari kosningarnar eins og skoðanakannanir sýna. „Fólk er óttaslegið, fólk er einfaldlega hrætt. Ég hef ekki upplifað viðlíka spennu í frönsku samfélagi. Ég tók hluta af mínu háskólanámi hér, hef unnið hér og búið tvisvar sinnum og verið með annan fótinn í Frakklandi um áratugaskeið og ég hef ekki fundið fyrir viðlíka spennu.“ Kjörstaðir verða opnir til klukkan átta að frönskum tíma, sex að íslenskum tíma, í stærstu borgum í kvöld. Útgönguspár verða birtar um svipað leyti, sem ættu að gefa nokkuð skýra mynd af úrslitum kosninganna. Til að ná hreinum meirihluta þarf 289 þingsæti af 577 en lokaniðurstöður fást líklega ekki fyrr en að viku liðinni, eftir seinni umferð kosninganna 7. júlí.
Frakkland Tengdar fréttir Frakkar ganga að kjörborðinu Kosningar, sem gætu orðið sögulegar, eru hafnar í Frakklandi. Aldrei áður hefur flokkur lengst til hægri verið líklegri til þess að bera sigur úr býtum í kosningum þar í landi. 30. júní 2024 08:43 Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Skoðanakannanir í Frakklandi benda allar til þess að Franska þjóðfylkingin, harðlínu-hægri flokkur Marine le Pen og Jordan Bardella, muni sigla heim stórsigri í fyrri umferð þingkosninganna í Frakklandi á morgun. 29. júní 2024 23:45 Mest lesið Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Innlent Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Innlent Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Erlent Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Innlent Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Innlent Gremja vegna golfbíla á meistaramóti Innlent Engin gögn bendi til tengsla við Hamas Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Lögreglan kölluð til er hundur lék lausum hala á Reykjanesbrautinni Innlent Sjúklingur réðst á lækni sem fær ekki bætur frá ríkinu Innlent Fleiri fréttir Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Sjá meira
Frakkar ganga að kjörborðinu Kosningar, sem gætu orðið sögulegar, eru hafnar í Frakklandi. Aldrei áður hefur flokkur lengst til hægri verið líklegri til þess að bera sigur úr býtum í kosningum þar í landi. 30. júní 2024 08:43
Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Skoðanakannanir í Frakklandi benda allar til þess að Franska þjóðfylkingin, harðlínu-hægri flokkur Marine le Pen og Jordan Bardella, muni sigla heim stórsigri í fyrri umferð þingkosninganna í Frakklandi á morgun. 29. júní 2024 23:45