Innlent

Ferða­menn lentu í vand­ræðum á bíl keyrðum 250 þúsund kíló­metra

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Ástandið á dekkjunum er í lakara lagi eins og sjá má á myndinni.
Ástandið á dekkjunum er í lakara lagi eins og sjá má á myndinni. Vísir/Samsett

Kanadísk hjón á ferð um landið lentu í hættu við akstur í rigningu á Vestfjörðum þegar bílaleigubíll sem þau höfðu leigt flaut upp og lét ekki að stjórn. Eyþór Eðvarðsson var staddur á sama hóteli og þau og heyrði þau útundan sér ræða bílavandræði sín. Í ljós kom að dekkin á bílnum voru handónýt og auk þess hafði bíllinn verið ekinn tæplega 250 þúsund kílómetra.

Eyþór Eðvarðsson segir í samtali við fréttastofu að bílaleigan hefði snarlega sent þau á næsta bílaverkstæði þegar málið kom á þeirra borð og ný sett voru sett undir bílinn.

„Þannig í raun og veru hlaut málið farsælan endi,“ segir Eyþór.

Bíllinn óhjólastilltur

En farir hjónanna kanadísku eru þó svo sannarlega ekki sléttar. Þegar dekk eru jafnskemmd og mynd af einu dekki bílsins ber vitni um er hætt á því að bíllinn fljóti upp í bleytu eða krapa, eins og það er kallað. Það gerist þegar vatnslag byggist upp á milli dekkja og vegyfirborðs sem dregur verulega á veggripi og gerir bílinn torstýrðari. Það getur verið stórhættulegt í mikilli úrkomu.

Eyþór fór með hjónunum kanadísku á verkstæðið og þar tók á móti þeim vélavirki sem Eyþór lýsir sem „töfralækni.“

„Hann var ansi góður þarna á versktæðinu. Við hringdum í einn sem var bent á þarna í hverfinu. Þá kom hann, maður vel kominn á aldur. Hann sagði ekki neitt, fór svona niður á hnén og þuklaði á dekkinu öðrum megin. Stingur svona hendinni inn og segir lágum rómi: Hann er svo gjörsamlega óhjólastilltur þessi bíll,“ segir Eyþór.

Lítill japanskur bíll á 250. þúsundasta kílómetranum

Eyþór segir að bílaleigan sem um ræðir hafi brugðist vel við með því að senda þau á verkstæðið og að þau ættu hrós skilið. En að hann eigi erfitt með að skilja hvers vegna bílaleigur skuli leigja út bíla sem hafa verið keyrðir jafnmikið og þeirra hjóna.

„Það sem mér fannst verst í þessu voru eiginlega ekki dekkin heldur að leigja út bíl keyrðan 250 þúsund kílómetra sem er bara lítill japanskur. Ég átta mig ekki á því,“ segir Eyþór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×