Innlent

Skúffu­kaka og mjólk vegna pirrings út af töppum

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Halldóra Arnardóttir, markaðsstjóri ferskvara hjá MS, sem býður fólki að koma til sín eða til annarra starfsmanna MS og fá sér skúffuköku og mjólkurglas um leið og kennsla fer fram í notkun tappanna.
Halldóra Arnardóttir, markaðsstjóri ferskvara hjá MS, sem býður fólki að koma til sín eða til annarra starfsmanna MS og fá sér skúffuköku og mjólkurglas um leið og kennsla fer fram í notkun tappanna. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Eins og landsmenn hafa tekið eftir þá eru komnir áfastir tappar á drykkjarfernur frá Mjólkursamsölunni vegna nýrrar Evróputilskipunar. Einhverjir láta tappana fara í taugarnar á sér og segja þá þvælast fyrir en því fólki er boðið í mjólk og skúffuköku hjá Mjólkursamsölunni til að fara yfir hvernig nýju tapparnir virka.

Það er í mjólkurbúinu á Selfossi hjá MS þar tapparnir eru settir á fernurnar en hér er verið að tala um 10 milljónir mjólkurferna með nýju töppunum í framleiðslunni á hverju ári fyrir utan áfasta tappa á öðrum drykkjarumbúðum hjá fyrirtækinu.

En af hverju áfastir tappar?

„Frá og með 3. júlí þá er tilskipun frá Evrópusambandinu um áfasta tappa og lok á öll drykkjarílát og umbúðir. Þetta er bara eitt skref í áttina að þessum umhverfismálum, þannig að við ætlum bara að minnka þessa plastnotkun til þess að minnka að tapparnir séu bara að fara út um allt,” segir Halldóra Arnardóttir, markaðsstjóri ferskvara hjá MS.

Nýju áföstu tapparnir eru settir á í mjólkurbúinu á Selfossi.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og nýju tapparnir þurfa ekki að fara í plast í flokkun, heldur beint með fernunni í pappa en nýi tappinn er úr sykurreyr, ekki plasti, þannig að það sé á hreinu.

En heyrir Halldóra og hennar fólk einhvern pirring hjá fólki vegna nýju áföstu tappanna?

„Já, það er pirringur og maður skilur það bara vel þar sem þetta er stór breyting og enn og aftur, fólk er fljótt að venjast. Ef að það er einhver pirraður, sem vill koma og tala við mig eða okkur í Mjólkursamsölunni þá bara bjóðum við þeim í skúffuköku og eitt mjólkurglas og ræðum málin,” segir Halldóra létt í bragði um leið og hún tók að sér að kenna stuttlega hvernig nýju áföstu tapparnir virka.

Nýju tapparnir eru úr sykurreyr og fara með fernunni í pappa þegar flokkað er.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×