Lífið

Dóttir Al­freðs og Fríðu komin með nafn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Alfreð smellir kossi á Viktoríu dóttur þeirra Fríðu Rúnar eftir frækið 1-1 jafntefli gegn Argentínu í Moskvu á HM 2018. Alfreð skoraði mark Íslands í leiknum.
Alfreð smellir kossi á Viktoríu dóttur þeirra Fríðu Rúnar eftir frækið 1-1 jafntefli gegn Argentínu í Moskvu á HM 2018. Alfreð skoraði mark Íslands í leiknum. Getty

Alfreð Finnbogason knattspyrnumaður og Fríða Rún Einarsdóttir létu skíra dóttur þeirra við fallega athöfn á dögunum. Stúlkan fékk nafnið Eva Kolbrún. Seinna nafnið er í höfuðið á móður Fríðu.

Eva Kolbrún er þriðja barn parsins en fyrir eiga þau dóttur fædda árið 2017 og son fæddan í ársbyrjun 2019.

Alfreð og Fríða Rún eru búsett í Belgíu þar sem Alfreð spilar með KAS Eupen. Alfreð hóf einmitt atvinnumannaferil sinn í Belgíu fyrir rúmum áratug en Fríða Rún er fyrrverandi fimleikastjarna úr Gerplu.

Viktor Einarsson, knattspyrnumaður og bróðir Fríðu, birti fallega mynd af þeim syskinum með Evu Kolbrúnu á skírnardaginn.

Skjáskot/Viktor

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×