Neytendur

Selja ein­tómt brauð á 3.190 krónur

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Magnús Hafliðason segir pítsuna vera grín.
Magnús Hafliðason segir pítsuna vera grín. Skjáskot/Vilhelm

Ýmsir ráku upp stór augu í gær og í dag þegar þeir skoðuðu vefsíðu Dominos en þar er ný pítsa á matseðli sem ber heitið „Nakin pizza“. Nýja pítsan er án áleggs, án sósu og án osts. Brauðið kostar 3.190 krónur samkvæmt matseðli.

Magnús Hafliðason, forstjóri Dominos, segir í samtali við Vísi að í raun sé um grín að ræða og að pítsan sé aðeins á matseðli í gær og í dag. 

Grínið kom frá auglýsingastofunni

„Þetta er nú hálfgert grín bara. Hugmyndin er sú að nakin pítsa er nú kannski ekki beint eitthvað sem þú hugsar um alla daga. Þetta er hugmynd sem kom frá auglýsingastofunni okkar og vannst áfram okkar á milli og við ákváðum bara að kýla á þetta.“

Hugmyndin spratt upp í tengslum við gamla hjátrú um Jónsmessunótt en samkvæmt henni er talið að það sé mjög heilnæmt að velta sér nakinn upp úr dögginni um nóttina. 

„Þetta er í tengslum við Jónsmessuna. Þetta kemur þaðan og það er grínið. Við vildum sjá hvernig nakin pítsa yrði. Þú getur haft hana með þér.“

Þó nokkrir pantað sér pítsuna

Þótt að um grín sé að ræða hafa þó nokkrir viðskiptavinir Dominos pantað sér nýju pítsuna. Magnús segir það koma á óvart. Spurður hvort það hafi komið til greina að hafa pítsuna ódýrari segir Magnús:

„Við vorum nú reyndar að spá í að verðleggja hana þannig að það myndi enginn panta hana og við töldum okkur nú vera að gera það með því að hafa hana svona. Þetta er nú bara til gamans gert og líka kannski til að láta fólk velta fyrir sér hvort við séum nú alveg búin að tapa því. Við sáum að fólk var aðeins að velta þessu fyrir sér í gær eins og eðlilegt er,“ segir Magnús.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×