Íslenski boltinn

Emma heldur á­fram að raða inn mörkum og FHL fór á toppinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emma Hawkins er markahæst í Lengjudeildinni í sumar.
Emma Hawkins er markahæst í Lengjudeildinni í sumar. @fhl.fotbolti

FHL komst aftur á toppinn í Lengjudeild kvenna í fótbolta eftir sex marka stórsigur á Grindavík í Safamýrinni.

FHL vann leikinn 6-0 eftir að hafa verið 1-0 yfir í hálfleik. Liðið er nú með sextán stig af 21 mögulegu og tveimur stigum á undan HK sem í öðru sætinu.

FHL og er sameiginlegt lið Fjarðabyggðar, Hattar frá Egilsstöðum og Leiknis frá Fáskrúðsfirði. Liðið gæti unnið sér sæti í Bestu deildinni í fyrsta sinn í sögunni haldi þær áfram á þessari braut.

Grindavík var aðeins þremur stigum á eftir FHL fyrir leikinn en það var bara eitt lið á vellinum í dag.

Emma Hawkins skoraði þrennu í leiknum en hún er markahæsti leikmaðurinn í deildinni og var þarna að skora sitt tíunda mark í sumar. Hún var líka að skora þrennu í öðrum leiknum í röð.

Deja Jaylyn Sandoval kom FHL yfir á 23. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.

Samantha Rose Smith bætti við öðru marki í upphafi seinni hálfleiksins og svo var komið að Emmu.

Hún skoraði þriðja markið á 61. mínútu og bætti svo við mörkum á 66. mínútu og á 75. mínútu. Þrenna á korteri.

Siðan sjötta mark FHL var síðan sjálfsmark á 84. mínútu og stórsigur í jöfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×