Innlent

Án raf­magns í tuttugu mínútur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tengivirkið við Eyvindará.
Tengivirkið við Eyvindará. Bjarkir.is

Rafmagnslaust varð á Egilsstöðum, Seyðisfirði, Borgarfirði eystri og nærsveitum korter yfir tíu í morgun vegna útleysingar frá tengivirki við Eyvindará.

Íbúar á Austurlandi þurftu að glíma við rafmagnsleysi í um tuttugu mínútur. Í tilkynningu frá Landsneti segir að verið sé að kanna ástæður þess að útleysing varð frá tengivirkinu.

Rétt rúmlega ár er liðið síðan rafmagnslaust varð á svæðinu vegna spennis í sama tengivirki sem ofhitnaði í framhaldi af hitabylgju á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×