Veður

Víðast hvar þung­búið á þjóð­há­tíðar­daginn

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Veðurspá komandi viku er ekkert sérlega spennandi. 
Veðurspá komandi viku er ekkert sérlega spennandi.  Vísir/Arnar

Það er útlit fyrir hægan vind á landinu í dag. Heilt yfir verður nokkuð þungbúið á Suður- og Vesturlandi og dálítil væta gæti látið á sér kræla öðru hvoru. Á Norður- og Austurlandi ætti að verða þurrt með einhverjum sólarköflum. 

Í textaspá veðurstofunnar segir að hiti í dag verði 7 til 16 stig, hlýjast á Norðvesturlandi. 

Búist er við suðlægri eða breytilegei átt 3-10 m/s á morgun. Víða skýjað og fer að rigna eftir hádegi og um kvöldið, fyrst suðvestanlands. Hiti 7 til 12 stig.

Framan af miðvikudegi rignir víða enn, ef að líkum lætur, en síðdegis dregur úr vætunni.

Þegar litið er á veðurkort fyrir vikuna sem nú er að hefjast, er útlitið heilt yfir ekki það sem flestir sækjast eftir í sumarveðri. Hitatölurnar verða í lægri kantinum og búast má við frekar þungbúnu veðri með vætu í flestum landshlutum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:

Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skýjað. Fer að rigna síðdegis og um kvöldið, fyrst suðvestanlands. Hiti 7 til 13 stig.

Á miðvikudag:

Norðaustan 5-13, en hægari vestlæg átt sunnantil. Súld eða rigning, en dregur úr vætu síðdegis. Hiti 6 til 14 stig, mildast syðst.

Á fimmtudag (sumarsólstöður):

Norðvestlæg átt, skýjað og dálítil rigning við norðurströndina. Skýjað með köflum en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Hiti breytist lítið.

Á föstudag, laugardag og sunnudag:

Norðlæg eða breytileg átt. Skýjað á norðanverðu landinu og lítilsháttar súld eða rigning af og til. Skýjað með köflum sunnantil og skúrir, einkum síðdegis. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðvestanlands.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×