Tíska og hönnun

Ofurskvísur landsins fögnuðu „Heiðar­legri“ fatalínu Heiðar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Ofurskvísur landsins fögnuðu nýrri fatalínu Heiðar Óskar x Andreu.
Ofurskvísur landsins fögnuðu nýrri fatalínu Heiðar Óskar x Andreu. SAMSETT

Förðunarfræðingurinn Heiður Ósk Eggertsdóttir fagnaði nýrri fatalínu með pomp og prakt í gærkvöldi. Fatalínan AndreA x Heiður er unninn í sameiningu við hönnuðinn Andreu Magnúsdóttir og mættu ofurskvísur landsins í teitið sem haldið var í verslun Andreu í Hafnarfirði.

„Flíkurnar eru allar úr svartri blúndu. Í vörulínunni eru átta hlutir en við byrjuðum að hanna línuna í október og höfum verið að fara fram og til baka með hana síðan,“ segir Heiður Ósk í samtali við blaðamann og bætir við að línan samanstandi af átta flíkum. 

Það sem einkennir þær er mjúk blúnda úr teygjanlegu efni sem umvefur líkamann og koma flíkurnar í mörgum stærðum. Fatalínan, stærðir og veislan sjálf var að sjálfsögðu með mjög „Heiðar-legu“ ívafi. 

„Við sáum líka til þess að stærðirnar væru „Heiðarlegar“, sum sé í mínum anda, lengdin á buxunum og kjólnum er extra síð. Það er alltaf hægt að stytta fyrir þá sem þurfa.

Svo er auðvitað hægt að dressa flíkurnar upp og niður á marga mismunandi vegu. Blúndan sýnir mikið en fyrir þá sem vilja hylja sig er alltaf hægt að fara í þunnar flíkur undir og kemur það ótrúlega skemmtilega út.“

Að sögn Heiðar var stemningin mjög góð í teitinu.

„Við frumsýndum línuna í gær fyrir mjög vel valinn hóp í verslun AndreA þar sem allir fengu að máta og velja sínar uppáhalds vörur úr línunni. Okkur fannst skemmtilegt að hafa sólgleraugna þema þar sem það er komið sumar og einnig vegna þess að línan er öll svört. 

Stemningin var geggjuð, allir á fullu að máta og eftir alla erfiðisvinnuna var svo gaman að sjá alla í flíkunum og sjá hvernig þeim var parað saman.“

Hér má sjá vel valdar myndir úr teitinu:

Ástrós Traustadóttir dansari og áhrifavaldur var á svæðinu.Elísabet Blöndal
Það var gríðarleg skvísustemning í loftinu.Elísabet Blöndal
Pattra S markaðsstjóri og áhrifavaldur skálaði fyrir Heiði og Andreu.Elísabet Blöndal
Erna Hrund, Andrea, Elísabet Gunnars og Ísabella.Elísabet Blöndal
Samfestingur úr línu Heiðar.Elísabet Blöndal
Glæsilegu mæðgurnar Andrea og Ísabella.Elísabet Blöndal
Skvísurnar rokkuðu sólgleraugun.Elísabet Blöndal
Heiður Ósk og Kolbrún Anna tískuskvísur landsins.Elísabet Blöndal
Förðunarfræðingurinn Sigurlaug Dröfn.Elísabet Blöndal
Heiður Ósk brosti breitt í nýja samfestingum sem hún hannaði með Andreu.Elísabet Blöndal
Ljósmyndarinn Aldís Pálsdóttir í svartri leðurkápu.Elísabet Blöndal
Heiður Ósk var með svört sólgleraugu í stíl við fittið.Elísabet Blöndal
Erna Hrund í góðum gír.Elísabet Blöndal
Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir.Elísabet Blöndal
Heiður bauð skvísunum í mat og teiti.Elísabet Blöndal
Ofurþjálfarinn Gerður Jónsdóttir.Elísabet Blöndal
Heiður segir að fólk geti valið hvort það vilji hafa samfestinginn gegnsæjan eða vera í undirlagi. Sjálf rokkaði hún gegnsætt lúkk.Elísabet Blöndal
Ingunn meðeigandi Heiðar á Reykjavík MakeUp School.Elísabet Blöndal
Manúela Ósk lét sig ekki vanta.Elísabet Blöndal
Skvísustuð í Hafnarfirði.Elísabet Blöndal
Andrea og Heiður skáluðu fyrir farsælu samstarfi.Elísabet Blöndal
Davíð Rúnar boxari og Heiður Ósk.Elísabet Blöndal





Fleiri fréttir

Sjá meira


×