Enski boltinn

Krafta­verka­maðurinn Emery fram­lengir á Villa Park

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Unai Emery gat leyft sér fagna í kvöld.
Unai Emery gat leyft sér fagna í kvöld. James Gil/Getty Images

Unai Emery, þjálfari Aston Villa, hefur verið verðlaunaður fyrir að koma liðinu í Meistaradeild Evrópu. Hann skrifaði í dag undir glænýjan fimm ára samning.

Emery tók við Aston Villa haustið 2022 eftir skelfilega byrjun undir stjórn Steven Gerrard. Undir hans óð liðið upp töfluna og endaði í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Á nýafstöðnu tímabili gerði Villa svo gott betur og endaði í 4. sæti. Skilar sá árangur liðinu í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn en félagið hefur ekki leikið á hæsta stigi Evrópu síðan árið 1983.

Hinn 52 ára gamli Emery hefur komið víða við á þjálfaraferli sínum sem hófst árið 2004. Hann stýrði Valencia frá 2008 til 2012 en fór þaðan til Spartak Moskvu í Rússlandi. Hann tók við Sevilla 2013 og er stór ástæða þess að félagið er talið ósigrandi í Evrópudeildinni en það vann keppnina öll árin sem Emery var við stjórnvölinn.

Emery fór svo frá Andalúsíu til Parísar og tók við stórliði PSG. Þar – eins og svo margir – átti hann erfitt með að fá liðið til að spila eftir sínu höfði og yfirgaf það svo árið 2018. Sama ár tók hann við Arsenal eftir að Arsene Wenger steig til hliðar. Sá hafði þjálfað liðið frá árinu 1996 og áttu Skytturnar erfitt með að fóta sig undir nýjum stjóra.

Emery entist ekki lengi í Lundúnum en tók svo við Villareal árið 2020. Þar var hann í tvö ár og vann Evrópudeildina á nýjan leik áður en Aston Villa fékk hann til að leysa Gerrard af hólmi.

Voru efasemdaraddir uppi um hvort hans leikstíll myndi henta liðinu. Þær voru fljótar að þagna en leikmannahópur Villa virðist sniðinn að Emery. Sem dæmi má benda á að Ollie Watkins blómstraði á nýafstaðinni leiktíð. Skoraði hann 19 mörk og gaf 13 stoðsendingar í 37 deildarleikjum.

Á sama tíma og annað hvert stórlið virðist vera í leit að nýjum aðalþjálfara hefur Villa því ákveðið að framlengja samning Emery til ársins 2029. Nú er bara að bíða og sjá hversu hátt hann getur lyft liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×