Skoðun

Fremst meðal jafningja: Halla Tómas­dóttir á Bessa­staði

Birna Jónsdóttir skrifar

Mikilvægt er að við nýtum lýðræðislegan rétt okkar til að velja okkur forseta, að við kynnum okkur frambjóðendurna og fyrir hvað þeir standa.

Ef þið eruð ekki sannfærð eða eruð ennþá óákveðin, gefið ykkur tíma til að skoða fyrir hvað Halla Tómasdóttir stendur og hverju hún hefur áorkað. Hún er óumdeild, farsæl, engum háð, og ekki flækt í vef íslenskra stjórnmála. Hún er með yfirgripsmikla reynslu úr atvinnulífinu bæði hér og erlendis, bæði sem frumkvöðull og stjórnandi. Hún hefur undanfarin ár varið kröftum sínum í að fá fyrirtæki á alþjóðlegum vettvangi til að fara betur með auðlindir, fólk og fjármuni. Í því ljósi er Höllu Tómasdóttur annt um kynslóðajafnrétti, að okkar kynslóð skilji við umhverfið í a.m.k. jafn góðum eða betri aðstæðum fyrir yngri kynslóðir, svo þær geti gengið að þeim vísum og nýtt sér á sama hátt og við. Þessi vinna skilaði henni nýverið á lista Reuters fréttastofunnar yfir 20 framsæknustu kvenbrautryðjendur í loftslagsmálum á heimsvísu. Mér er hulið af hverju það náði ekki athygli íslenskra fjölmiðla.

Á undanförnum vikum hefur Halla Tómasdóttir margfaldað fylgið sitt. Það er athyglisvert að eftir góða kosningu 2016 virðist hún hafa þurft að sanna sig upp á nýtt í hugum Íslendinga. Hún er á góðri leið með það sem verður að teljast mikið afrek. Það hefur verið ævintýri líkast að vinna að framboði Höllu Tómasdóttur undanfarnar vikur og finna meðbyrinn aukast jafnt og þétt. Það er ljóst að Íslendingum er annt um hver verður næsti forseti og ætla að kynna sér frambjóðendur vel. Fylgisaukningu Höllu Tómasdóttur má einmitt rekja til kjósenda sem hafa kynnt sér frambjóðendur vel, hafa gefið sér tíma til að hlusta á hana, kynnt sér fyrir hvað hún stendur og hverju hún hefur áorkað.

Það er kominn tími til að kona fái lyklavöldin aftur á Bessastöðum og Halla Tómasdóttir er hæfust þeirra kvenna sem bjóða sig fram. Enginn frambjóðenda hefur viðlíka reynslu af atvinnulífi og menntamálum.

Í könnun um daginn kom fram að heiðarleiki og einlægni séu þeir eiginleikar sem séu mikilvægastir í fari forseta Íslands. Ef þú kýst þessa mannkosti og bætir við ótæmandi ástríðu er Halla Tómasdóttir forsetinn þinn. Hún er líka skemmtileg og það er vanmetinn eiginleiki sem sæmir forseta okkar vel.

Höfundur er grunnskólakennari.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×