Í fyrsta skipti í hálfa öld dregst bílasala saman í hagvexti
![Efri röð: Brynjar Elefsen Óskarsson, forstjóri BL og Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi. Neðri röð: Jón Hannes Karlsson, framkvæmdastjóri Ergo fjármögnunarþjónustu Íslandsbanka og Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.](https://www.visir.is/i/FB2DAF093DD1F354444AE3A974CE6019F6D2BA88E7EE0EE31894E505E60575BC_713x0.jpg)
Sala á nýjum bílum er að dragast skarpt saman þrátt fyrir hagvöxt, nokkuð sem hefur ekki gerst í liðlega hálfa öld, en á sama tíma er sala á notuðum bílum að ganga vel. Ýmis bílaumboð áttu umtalsvert af nýjum bílum um áramótin en sú staða hefur batnað eftir því sem leið á árið, að sögn viðmælanda Innherja. Bankamaður telur engin teikn á lofti hvað varðar getu bílaumboðanna við að standa í skilum en fjármagnskostnaður bílaumboða getur verið um tólf prósent.