Skoðun

Með­mæla­bréf með for­seta­efni

Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Um daginn var ég beðin um að veita meðmæli vegna atvinnuumsóknar manns sem hefur unnið með mér. Ég átti auðvelt með að fjalla um styrkleika hans í samhengi við verklýsinguna sem var dregin upp og hann fékk vinnuna. Það varð kveikjan af þessu meðmælabréfi með Katrínu Jakobsdóttur því margir hafa spurt mig hvaða kosti ég sjái í henni sem forsetaefni. Um leið og hún lýsti yfir framboði sínu vissi ég í hjarta mínu að þar var komin konan sem ég vildi í starfið að öllum öðrum frambjóðendum ólöstuðum. Kostir hennar eru í mínum huga ótvíræðir. Hún býr yfir mikilli og dýrmætri reynslu úr stjórnmálunum og úr menningargeiranum sem mun nýtast okkur öllum verði hún kjörin forseti.

Sameinandi afl

Ég hef persónulega reynslu af samskiptum við Katrínu fyrst þegar hún var mennta- og menningarráðherra árin 2009 - 2013. Þá vorum við hópur sem leituðum til hennar um stuðning við kortlagningu á efnahagslegum áhrifum menningar og skapandi greina. Hún setti sig vel inn í málin og veitti verkefninu brautargengi. Kortlagningin markaði upphafið á skilgreiningu atvinnulífs menningar og skapandi greina. Síðar í embætti forsætisráðherra veitti hún fjármagni til Hagstofu Íslands til að þróa mætti menningarvísa. Þannig stuðlaði hún að því að festa í sessi reglulega útgáfu á tölfræði atvinnulífs menningar og skapandi greina. Með þessu átti hún stóran þátt í að móta viðhorf stjórnmálanna og stjórnsýslunnar til nýs og ört vaxandi atvinnuvegs. En það sem meira er um vert er að hún skilur að samfélög eru dæmd af listum og menningu því þar býr sameinandi afl og endurspeglun sjálfsmyndar.

Í samræmi við þetta talar Katrín fyrir nauðsyn þess að styrkja grundvöll lýðræðis og mannúðar og vinna gegn skautun.

X-Katrín

Ég hef í gegnum tíðina heillast af fágaðri og hlýrri framkomu Katrínar og hæfileikum hennar í mannlegum samskiptum. Hún er heiðarleg og samkvæm sjálfri sér, skarpgreind, læs á samferðafólk sitt og á hjartslátt samfélagsins. Þetta eru allt kostir sem ég vil sjá í forseta. Ég gef Katrínu Jakobsdóttur því mín bestu meðmæli og kýs hana til embættis forseta þann 1. júní nk.

Höfundur starfar á sviði skapandi greina.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×