Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Hjörvar Ólafsson skrifar 5. maí 2024 21:24 FH er komið í úrslit Olís-deildar karla í handbolta. Vísir/Pawel FH tryggði sér í kvöld farseðilinn í úrslitaeinvígi Olís-deidar karla í handbolta en liðið komst þangað með sannfærandi sigri á móti ÍBV í oddaleik liðanna í stútfullum Kaplakrika í kvöld. FH-ingar léku án sinnar skærustu stjörnu, Arons Pálmarssonar, í þessum leik en hann er að glíma við meiðsli í putta og nára. Það var ekki að sjá í þessum leik að fjarvera hans hefði slæm áhrif á heimamenn sem léku við hvurn sinn fingur frá upphafi til enda. FH-liðið náði frumkvæðinu strax í upphafi leiksins og komst í 3-0 eftir nokkurra mínútna leik. FH náði svo fimm marka forskoti 9-4 um miðbik fyrri hálfleiks og staðan var 17-13 FH í vil í hálfleik. Hafnarfjarðarlðið slakaði aldrei á klónni í seinni hálfleik en það var fyrst og fremst sterk vörn og markvarsla Daníels Freys Andréssonar sem lagði grunninn að þessum sigri. Daníel Freyr varði 16 skot í leiknum þar af þrjú vítaköst. Varnarmúr FH-liðsins var þéttur. Vísir/Pawel Símon Michael Guðjónsson naut góðs af sterkum varnarleik FH-liðsins en hann var markahæstur hjá liðinu með 10 mörk. Ásbjörn Friðriksson sýndi svo gamalkunna takta en hann þurfti að stíga upp í fjarverju Arons. Símon Michael Guðjónsson skoraði mörk í öllum regnbogans litum. Vísir/Pawel Ásbjörn skoraði sex mörk líkt og Birgir Már Birgisson en báðir voru þeir hluti af sterki vörn FH-inga í leiknum. Jóhannes Berg Andrason lagði svo fimm mörk í púkkinn sem og nokkra múrsteina í varnarmúrinn. Leikmenn FH náðu að halda Elmari Erlingssyni í skefjum að þessu sinni en þessi frábæri miðjumaður hafði óvenju hægt um sig í þessum leik sökum sterkrar varnar heimaliðsins. Elmar skoraði fimm mörk og var markahæstur hjá Eyjaliðinu ásamt Kára Kristjáni Kristjánssyni. Einar Bragi Aðalsteinsson hafði góðar gætur á Elmari Erlingssyni. Vísir/Pawel Stjörnur og skúrkar Vörn FH var ógnarstkerk allan tímann og þar fyrir aftan var Daníel Freyr eins og klettur. Á sama tíma náðu Eyjamenn ekki að tengja saman í vörninni og þar af leiðandi tókst Pavel Miscevich og Petar Jokanovic ekki að klukka marga bolta. Dómarar leiksins Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson höfðu einkar góð tök á þessum leik og negldu allar stórar ákvarðanir. Leikur sem hefði hæglega getað einkennst af hita og látum fékk að flæða vel og handboltinn var í fyrirrúmi. Anton Gylfi og Jónas fá níu í einkunn. Stemming og umgjörð Það voru forréttindi að fá að verða vitni af stemmingunni sem stuðningssveitir beggja liða sköpuðu. Kaplakriki var stútfullur og allir sem mættu í kvöld létu vel í sér heyra. Stemmingin var frábær og stuðningsmenn liðanan eiga hrós skilið. Fram undan er landsleikjahlé en í kjölfarið á því þurfa Afturelding og Valur að útkljá hvort liðið mætir FH í úrslitum. FH-ingar eru því á leið í pásu en það jákvæða fyrir þá er að þeir fá tíma til þess að Aron nái sér af meiðslum sínum á meðan. Þá mun FH endurheimta Jakob Martin Ásgeirsson í úrslitaeinvíginu en hann hefur verið fjarri góðu gamni í síðustu tveimur leikjum vegna leikbanns sem hann hefur nú setið af sér. Leikmenn FH fagna sigrinum vel og innilega. Vísir/Pawel Olís-deild karla FH ÍBV
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik