Menning

Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast á­horf­endum í Hörpu

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Hélène Grimaud er ekki aðeins framúrskarandi einleikari sem sér tónlist lit heldur líka mikill dýravinur.
Hélène Grimaud er ekki aðeins framúrskarandi einleikari sem sér tónlist lit heldur líka mikill dýravinur. Stöð 2

Margverðlaunaður franskur píanóleikari kemur fram með einni fremstu sinfóníuhljómsveit Þýskalands, Bamberg, í Hörpu annað kvöld.

Hélène Grimaud er ekki aðeins framúrskarandi einleikari sem sér tónlist lit heldur líka mikill dýravinur. Hún kom að stofnun Verndunarmiðstöðvar fyrir úlfa í New York en á landareign hennar er rannsóknarsetur fyrir úlfa.

„Það er svo mikill misskilningur í gangi um þessi dýr og hegðun þeirra en um leið er þetta topprándýr í vistkerfinu og gegnir mjög mikilvægu hlutverki.“

Náttúran og dýraríkið er Hélène gríðarlegur innblástur.

„Allt tengist. Allar greinar tilveru okkar; allt frá vísindum, til trúarbragða og lista. Allt á rætur í altæku innsæi og ef maður lítur á, sérstaklega þýsku rómantísku tónskáldin þá var náttúran æðsta andagift þeirra. Þar fundu þeir innblásturinn og styrk sinn. Og ég held að það sama eigi við um okkur. Hún er nokkuð sem er yfirþyrmandi en alls ekki á neikvæðan hátt. Náttúran fær mann til að fyllast lotningu vegna fegurðar og mikilfengleika. Þetta er merki um að það sé eitthvað miklu stærra en við sjálf þarna úti.“

Hún hlakkar til að tengjast íslenskum áhorfendum annað kvöld í gegnum tónlist og kyrrð.

„Þegar tilfinningarnar taka völdin stöðvast tíminn, þá ríkir kyrrðin. Tengingin verður að vera til staðar og við verðum saman,“ segir Hélène um tónleikana annað kvöld.

Nánari upplýsingar um tónleikana má finna á vef Hörpu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.