Lífið

Arki­tekt dýrasta húss Ís­lands­sögunnar selur í Foss­vogi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Húsið hefur verið vel við haldið síðastliðin ár og endubætt í anda hönnuðarins.
Húsið hefur verið vel við haldið síðastliðin ár og endubætt í anda hönnuðarins. Fasteignaljósmyndun

Við Giljaland 3 í Fossvogsdal má finna glæsilegt 235 fermetra raðhús sem var byggt árið 1969. Húsið er í eigu Sigurðar Halldórssonar arkitekts, einn af eigendum arkitektastofunnar Glámu-Kím, sem hannaði dýrasta hús Íslandssögunnar sem stendur við Mávanes í Garðabæ, og Elísabetar Konráðsdóttur hjúkrunarfræðings. 

Umrætt hús er hannað af Haraldi V. Haraldssyni arkitekt árið 1969 og er því einstakt fyrir margar sakir. 

Húsið hefur hlotið gott viðhald utanhúss í gegnum árin. Fasteignaljósmyndun

Húsið er byggt á fjórum pöllum sem er einkennandi húsagerð í hluta Fossvogshverfis. Í hönnun Haraldar eru svefnherbergin á efsta palli hússins, en ekki þeim neðsta líkt og tíðkast í hvefinu. Sú tilhögun hefur marga kosti, svefnherbergi njóta friðhelgi á efri hæð og unnt er að ganga beint úr stofu í skjólgóðan suðurgarð sem virkar sem einhvers konar framlenging af húsinu.

Í húsinu eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi. Gott flæði er milli rýma þar sem léttbyggður stigi hleypir birtu milli hæða.

Heimili hjónanna er smekklega innréttað þar sem tímalaus hönnun í bland við list og vönduð húsgögn prýða hvern krók og kima.

Ásett verð fyrir eignina er 170 milljónir. Nánar upplýsingar má finna á fasteignavef Vísis.

Fallega hannaður stigi er á milli hæða með þakglugga sem veitir dagsbirtu milli rýma.Fasteignaljósmyndun
Útgengt er úr stofu í skjólsælan og gróinn garð í suður.Fasteignaljósmyndun
Hönnun eldhússins er öðruvísi og smart.Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Gott flæði er milli hæða.Fasteignaljósmyndun
Tvö baðherbergi eru í húsinu.Fasteignaljósmyndun

Á vef arkitektastofu Gláma-Kím má sjá myndir af húsinu við Mávanes. 


Tengdar fréttir

Hús Ingu Lindar það dýrasta sem selst hefur á Íslandi

Inga Lind Karlsdóttir, fjölmiðlakona og einn eigenda Skot productions, seldi 760 fermetra einbýlishús sitt að Mávanesi 17 í Garðabæ á 850 milljónir króna. Um er að ræða dýrasta einbýlishús sem selst hefur hér á landi.

Glæsivilla Ingu Lindar keypt inn í Atlanta veldið

Eitt glæsilegasta einbýlishús landsins að Mávanes 17 í Garðabæ hefur verið selt Hannesi Hilmarssyni, einum eiganda flugfélagsins Atlanta og eiginkonu hans Guðrúnu Þráinsdóttur. Húsið var í eigu Ingu Lindar Karlsdóttur sjónvarpskonu og eiganda Skot Productions.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.