Bíó og sjónvarp

Fyrsta plakatið og önnur kitlan úr Snertingu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Úr annarri kitlunni fyrir Snertingu.
Úr annarri kitlunni fyrir Snertingu.

Snerting, nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks, verður frumsýnd á Íslandi 29. maí næstkomandi. Önnur kitlan úr myndinni er komin í loftið. 

Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, sem var mest selda bókin á Íslandi árið 2020 og hlaut mikið lof gagnrýnenda.  Plakat myndarinnar má sjá hér að neðan en hulunni er svipt af því í fyrsta sinn. 

Kvikmyndin segir sögu Kristófers, eldri manns sem stendur á tímamótum og leitar svara við áleitnum spurningum úr fortíð sinni. Hvað varð um stúlkuna sem hvarf sporlaust úr lífi hans fimmtíu árum áður?

Sagan teygir sig víða um heim og ferðalag Kristófer ber hann þvert yfir hnöttinn. Á leið sinni rifjar hann upp sælar minningar frá sumrinu sínu í London 1969. Egill Ólafsson fer með aðalhlutverkið sem Kristófer.

Focus Features og Universal hafa tryggt sér sýningarréttinn á heimsvísu. Myndin er heimsfrumsýnd á Íslandi 29. maí en svo verður hún frumsýnd í Bandaríkjunum þann 12. júlí næstkomandi og í framhaldinu um allan heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.