Lífið

Stjörnulífið: „Þarna á sviðinu er æskudraumur að rætast“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga.
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga.

Liðin vika var með eindæmum viðburðarík. Edduverðlaunahátíðin, skvísutónleikarnir Mamma þarf að djamma, árshátíðir og afmæli báru þar hæst. 

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.

Edduverðlaunin

Edduverðlaunin fóru fram með pompi og prakt á laugardagskvöldið þar sem kvikmynda- og sjónvarpsfólk var samankomið til þess að uppskera og fagna síðasta ári. 

Nína Dögg Filipusdóttir fékk verðlaun fyrir leik sinn í aukahlutverki í kvikmyndinni Villi­bráð. Kvikmyndin fékk alls þrenn verðlaun á hátíðinni.

Leikkonan Þuríður Blær Jóhannsdóttir fagnaði Villbráðargenginu.

Bjarni Snæbjörnsson og María Thelma veittu tvenn verðlaun á hátíðinni. 

Patrekur Jaime var glæsilegur eins og alltaf.

Birna Rún Eiríksdóttir lét sig ekki vanta.

Skvísur landsins djömmuðu saman

Tónleikarnir Mamma þarf að djamma fóru fram í Háskólabíói á laugardagskvöld. 

„Þessar tvær mömmur djömmuðu með 1000 öðrum gellum í gær og ca.6 körlum, skrifar Eva Ruza við sæta mynd af sér og Jóhönnu.

Afmæli Bríetar

Tónlistarkonan Bríet Isis fagnaði 25 ára afmæli sínu með tilheyrandi tónlistarveislu á Kaffi Flóru um helgina. Helsta tónlistarfólk landsins tróð upp og skemmtu gestum. Má þar nefna Birgittu Haukdal, Röggu Gísla, GDRN, Birni, Unnstein Manuel og Auðunn Blöndal.

Árshátíð Word Class

Árshátíð World Class fór fram í Sjálandi Garðabæ um helgina. Þema kvöldsins var all white og mættu starfsmenn fyrirtækisins prúðbúnir í hvítum klæðnaði.

Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og raunveruleikastjarna, lét sig ekki vanta og mætti glæsileg í hvítum síðkjól.

Boxarinn og þjálfarinn Davíð Rúnar, þekktur undir nafninu Thug father, segist hafa farið all in í klæðaburði á árshátíðinni.

Sjúkur í sína

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson er sjúkur í sína og birti skemmtilega mynd af sér og eiginkonu sinni, Hafdísi Jónsdóttur, í tilefni af 38 ára afmæli hennar í vikunni. Við hlið Hafdsíar má sjá glitta í Lísu Hafliðadóttur eiginkonu Friðrik Dórs, sem fær þó enga athygli.

Afhenti Palla frænda verðlaun

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra afhenti verðlaun í Meistaradeildinni í hestaíþróttum um helgina. 

„Það var því sérstaklega gaman í gær að afhenda verðlaun í Meistaradeildinni að Palli bar sigur úr bítum á Vísi sínum í töltkeppninni.“

Notaleg helgi

Rauveruleikastjarna Sunneva Einars nýtti helgina í afslöppun og göngutúra með hundinn.

Stakk af í sólina

Brynja Dan Gunnarsdóttir, eigandi Extraloppunnar og varaþingmaður Framsóknarflokksins, nýtur lífsins í sólinni á Tenerife með kærastanum Jóhanni Sveinbjörnssyni.

Loksins helgi

Elísabet Gunnarsdóttir tók fagnandi á móti föstudeginum.

Slökun og spa

Andrea Magnúsdóttir athafnakona er líklega endurnærð eftir helgina þar sem hún einkenndist af slökun, jóga, spa og gufuböðum í góðum hópi kvenna.

Helgi á Helgafelli

Helgi fór á Helgafell um helgina.

Sundlaugpartý í Sundhöllinni

Tinna Alavis gerði sér lítið fyrir og hélt upp á 10 ára afmæli dótturinnar Ísabellu í Sundhöllinni í Reykjavík. Sannkallað draum afmæli.

Draumar verða að veruleika

Þjálfarinn Sandra Helgadóttir og eiginmaður hennar Hilmir Arnarson eiga von á sínu fyrsta barni í lok september.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Páskafrí og veðurtepptir Íslendingar

Páskarnir eru að baki með tilheyrandi súkkulaðiáti og notalegheitum. Fjölmargir nutu páskanna erlendis á meðan aðrir skelltu sér til Ísafjarðar á tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður.

Stjörnulífið: Hlustendaverðlaunin, ferðalög og afmælisgleði

Liðin vika var heldur betur viðburðarík hjá stjörnum landsins. Hlustendaverðlaunin og plötuútgáfur báru þar hæst. Íslendingar eru þó alltaf á faraldsfæti og var fólk ýmist að sleikja sólina erlendis eða dilla mjöðmunum í austurrísku Ölpunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.