Viðskipti innlent

Aðal­fundi Lands­bankans frestað

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans. Stöð 2/Einar

Bankaráð Landsbankans ákvað á fundi sínum í dag að fresta aðalfundi bankans sem fara átti fram á morgun. Að höfðu samráði við Bankasýslu ríkisins hefur verið ákveðið að halda aðalfundinn föstudaginn 19. apríl.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landsbankans. Þar segir að Bankasýslan hafi með bréfi í dag óskað eftir upplýsingum varðandi tilboð Landsbankans í TM tryggingar hf. Bankaráð muni svara bréfinu innan tilskilins frests.

Tilkynnt var um kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM á sunnudaginn. Bankasýslan segist hafa komið af fjöllum við tilkynningu um kaupin og þá hefur fjármálaráðherra sagst ekki munu samþykkja kaupin nema þá sem hluta af sölu á hlut ríkisins í Landsbankanum. Ríkið er langstærsti hluthafinn í bankanum.

Bankasýslan lýsti yfir vonbrigðum með ákvarðanatöku og upplýsingagjöf bankaráðs Landsbankans og krafðist þess að aðalfundinum yrði frestað. Sem nú er orðin raunin. Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri segir það vera hennar hlutverk að reka bankann og auka verðmæti hans. Þá hefur hún bent á að bankinn sé ekki ríkisfyrirtæki heldur almenningshlutafélag nær eingöngu í eigu ríkisins.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur sagst ekki munu taka þátt í því að selja hlut ríkisins í Landsbankanum fyrr en sölunni á Íslandsbanka verður lokið. Ákveðið var á ríkisstjórnarfundi í morgun að hefja söluferli á þeim hluta ríkisins í Íslandsbanka sem eftir stendur.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, setur stórt spurningamerki við að Bankasýslan hafi ekki verið upplýst um gang mála. Ljóst sé að fjármálaráðherra hafi vitað af viðræðum um kaup fyrir hálfum öðrum mánuði en ekki krafist þess að Bankasýsla kannaði málið. Ráðherra hafi eftirlitsskyldu með Bankasýslunni.


Tengdar fréttir

Ekki í stjórnar­sátt­mála að ríkisvæða trygginga­fé­lög

Fjármálaráðherra segir það ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar að selja hlut í Landsbankanum fyrr en sölu á Íslandsbanka verði lokið. Það samræmdist heldur ekki eigendastefnu stjórnvalda að Landsbankinn haslaði sér völl í tryggingastarfsemi.

„Þetta er að verða komið gott“

Formenn Miðflokksins og Samfylkingarinnar eru sammála um að fyrirhuguð sala ríkisins á Landsbankanum fari gegn eigandastefnu ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin tali í kross og málið beri þess merki að hún sé ekki sammála um grundvallaratriði. 

Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin

Forstjóri Bankasýslu ríkisins segir að stofnuninni hafi verið alls ókunnugt um kaup Landsbankans á öllu hlutafé í TM tryggingum. Landsbankinn haldi því fram að upplýst hafi verið um áhuga bankans á kaupunum í óformlegu símtali til stjórnarformanns Bankasýslunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×