Innlent

Opna Grinda­vík aftur

Samúel Karl Ólason skrifar
Hægst hefur töluvert á hraunflæði, bæði í átt að Svartsengi og i átt að Suðurstrandavegi.
Hægst hefur töluvert á hraunflæði, bæði í átt að Svartsengi og i átt að Suðurstrandavegi. Vísir/Vilhelm

Grindavík hefur verið opnuð aftur og Grindvíkingum og þeim sem starfa í bænum leyft að dvelja þar og vinna. Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum segir að lítil sem engin hreyfing sé á hraunrennsli, bæði inn í Svartsengi og fyrir ofan Suðurstrandaveg.

„Það er mat lögreglustjóra að ekki stafi ógn af hraunrennsli inni í Grindavík við núverandi aðstæður. Þá er fylgst vel með hraunrennsli fyrir ofan Suðurstrandarveg sem ógnar ekki veginum eins og staðan er í dag. Fylgst er vel með mengun inn á merktu hættusvæði,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir að vindátt sé hagstæð í dag og að mengun ætti því ekki að berast til Grindavíkur. Breytist það gæti aðgengi að bænum verið takmarkað. Þá er fólk sem fer til Grindavíkur beðið um að fylgjast með loftgæðum á vef Umhverfisstofnunnar

Ekki er mælt með að fólk verði í bænum að næturlagi og er fólk einnig beðið um að hafa í huga:

  • Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik. Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í ólestri. Lögreglustjóri mælir alls ekki með því að íbúar dvelji í bænum.
  • Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirfara. Hætta er á jarðfalli ofan í sprungur og sprunguhreyfingum. Hætta er á gasmengun. Þá getur hætta stafað af hraunflæði.
  • Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun. Þá hafa sprungur verið girtar af.
  • Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega. Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
  • Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja bæjarins, verktökum og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa. Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.
  • Þá er það forsenda fyrir opnun inn í Bláa Lónið og Northern Light Inn að hægt verði að opna flóttaleið inn á Grindavíkurveg og inn á Reykjanesbraut. Þannig háttaði til þegar starfsemi hófst þar að nýju eftir eldgosið í febrúar.

Tengdar fréttir

Stöðug virkni í nótt

Virknin í gosinu á Reykjanesi hefur verið óbreytt í nótt frá því sem var í gærkvöldi.

Eldgosið hagi sér öðruvísi og gæti varað lengur

Prófessor í jarðeðlisfræði segir eldgosið sem hófst á laugardag hegða sér öðruvísi en hin þrjú sem komið hafa upp á Sundhnúksgígaröðinni. Stöðug virkni í því gæti þýtt að það vari talsvert lengur en síðustu gos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×