Innlent

„Þetta eru ofsa­fengin við­brögð“

Árni Sæberg og Heimir Már Pétursson skrifa
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. Vísir/Vilhelm

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir boðun verkbanns af hálfu Samtaka atvinnulífsins vera ofsafengin viðbrögð við hófsömum kröfum VR.

Samtök atvinnulífsins tilkynntu í dag að stjórn samtakanna hefði samþykkt einróma að boða til allsherjaratkvæðagreiðslu um verkbann á félagsmenn VR.

„Tilgangur boðaðs verkbanns af hálfu SA er að þrýsta á forystu VR að ljúka yfirstandandi kjaraviðræðum í takt við þá stefnu sem þegar hefur verið mörkuð,“ var haft eftir Sigríði Margréti Oddsdóttur, framkvæmdastjóra SA, í fréttatilkynningu.

Fréttmaður náði tali af Ragnari Þór í Karphúsinu skömmu eftir að fréttatilkynningin barst.

„Þetta eru ofsafengin viðbrögð, svo vægt sé til orða tekið, miðað við þær hófstilltu kröfur sem við höfum sett fram gagnvart 150 manna hópi uppi á Keflavíkurflugvelli. Sem vinnur á lágmarkskjörum undir vinnuskipulagi sem fæst okkar sem hér búum myndum telja boðleg. Viðbrögðin eru ofsafengin og setja málin í annan farveg.“

Tugþúsundir félagsmanna undir

Ragnar Þór segir að boðað verkbann SA þýði að allt skrifstofufólk innan VR sé nú undir í boðuðum verkfallsaðgerðum á Keflavíkurflugvelli. Unnið sé að því að greina hópinn sem er undir og farið ítarlega yfir stöðuna innan VR. 

„Þetta eru þúsundir ef ekki tugþúsundir félagsmanna okkar.“

Digrir verkfallssjóðir

Hann segir að rætt verði á fundi samninganefndar á eftir hvernig verður brugðist við nýjast útspili SA.

„Þetta eru auðvitað stórtíðindi. Ofsafengin nálgun, eins og ég kom inn á áðan, gagnvart þessum fámenna hópi sem er á lágmarkskjörum og er að biðja um leiðréttingu. Við munum bregðast við með yfirlýsingu síðar í dag.“

Ráða verkfallssjóðir við það ef þúsundir eða tugþúsundir félagsmanna verða launalausar?

„Við erum með mjög öfluga sjóði, mjög öfluga sjóði. Þannig að þeir eru vel í stakk búnir til þess að takast á við ýmislegt. En eins og ég segi, á þessu stigi er best að segja sem minnst. Við þurfum auðvitað að koma saman, samninganefnd félagsins, og ráða ráðum okkar um hvernig við bregðumst við þessu og að sjálfsögðu taka síðan ákvarðanir um næstu skref.“


Tengdar fréttir

SA gæti gripið til verkbanns skelli verkföll á Icelandair

Formaður VR reiknar með að röð verkfallsaðgerða starfsmanna félagins hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli verði samþykktar í atkvæðagreiðslu sem lýkur á morgun. Ekki er útilokað að Samtök atvinnulífsins boði verkbann á starfsmenn VR sigli deilan í algeran hnút.

Hlé á spennu­þrungnum við­ræðum VR og SA

Brugðið getur til beggja vona í samningaviðræðum verslunarmanna og Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara. Fundur þeirra hófst klukkan tíu í morgun og lauk upp úr klukkan tíu í kvöld.

Verkfall VR í aðdraganda páska hefði mikil áhrif

Verkfall félagsmanna VR hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli hefst á miðnætti á föstudag eftir viku verði aðgerðirnar samþykktar í atkvæðagreiðslu sem hófst í dag. Viðræður deiluaðila hófst hjá ríkissáttasemjara í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×